Zeus sýnir rokksöngleikinn Lísu í Undralandi

Zeus, Leikfélag Borgarholtsskóla frumsýnir rokksöngleik um Lísu í Undralandi í bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ þann 16. apríl kl. 20:00. Með hlutverk Lísu fer Ásdís Magnea Erlendsdóttir. Öll tónlist í sýningunni er frumsamin. Höfundar tónlistar eru þeir Valbjörn Snær Lilliendahl og Vilhjálmur Skúli Vilhjálmsson. Leikritið er í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur.

Nemdaleikhúsið frumsýnir Stræti

Nemendaleikhúsið æfir nú lokaverkefni sitt Stræti eftir Jim Cartwright en frumsýning er föstudaginn 16. apríl n.k. í Smiðjunni við Sölvhólsgötu. Þessi útskriftarárgangur hefur vakið verulega athygli fyrir fyrri sýningar sínar í vetur, Eftirlitsmanninn eftir Gogol og Bráðum hata ég þig eftir Sigtrygg Magnason. Lokaverkefni þeirra er, eins og fyrr segir, breska leikritið Stræti eftir Jim […]

Aðalfundur og Leiklistarskóli Bandalags ísl. leikfélaga 2010

bil_island_logo

Þann 15. apríl nk. rennur út frestur til að skrá sig bæði á aðalfundinn í Sveinbjarnargerði og í Leiklistarskólann að Húnavöllum. Sjá nánar um aðalfundinn: https://www.leiklist.is/allar-frettir/adalfundur-2010Sjá nánar um Leiklistarskólann:  https://www.leiklist.is/skolinn/leiklistarskoli-bandalagsins-2010 Þeir sem nú þegar hafa skráð sig í skólann en ekki staðfest umsóknina með greiðslu staðfestingargjalds eru beðnir að gera það nú þegar – að […]

Glefsur hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Nú er æfingum að ljúka á vordagskrá Leikfélagsins. Um er að ræða ellefu einþáttunga sem félagsmenn sjálfir hafa skrifað. Efni leikritanna er fjölbreytt og spannar allt frá léttu gríni til djúpra meininga.  Uppfærslan nefnist Glefsur en höfundar eru þau María Guðmundsdóttir og Pétur R. Pétursson. Leikstjórar eru þær Bóel Hallgrímsdóttir, Guðný María Jónsdóttir og Ólöf […]

Dúfurnar frumsýndar hjá LR

Dúfurnar eftir David Gieslemann í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur verður frumsýnt á Nýja sviðinu laugardaginn 10. apríl. Höfundurinn verður viðstaddur frumsýninguna í Borgarleikhúsinu. Er þetta önnur heimsókn Gieselmanns til landsins en fyrri heimsókn hans var í tengslum við frumsýningu á verki hans Herra Kolbert sem Leikfélag Akureyrar sýndi árið 2006. Herra Kolbert hefur farið sigurför um […]

Aukasýning á Horn á höfði á Akureyri

Laugardaginn 10. apríl kl. 14 verður aukasýning á barnaleikritinu Horn á höfði sem GRAL sýndi við góða aðsókn um Páskana. Leikritið er sýnt í Rýminu. Verkið var frumsýnt sl. haust í Grindavík við frábærar undirtektir. Áhorfendur og gagnrýnendur voru sammála um að þetta væri eitt skemmtilegasta barnaleikrit ársins. Tónlistin er eftir Akureyringinn Villa Naglbít.

Hugleikur í Kjallaraheimsókn

Hugleikur snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann með stuttverkadagskrá sem ber yfirskriftina Kjallaraheimsókn. Dagskráin verður frumsýnd mánudaginn 12. apríl og endurtekin þriðjudaginn 13. apríl kl. 20.00 bæði kvöld, en alls verða sýnd fimm ný stuttverk, Heimsókn og Í sjálfheldu eftir Árna Friðriksson, Stjörnur og norðurljós eftir Hjörvar Pétursson, Stuldur eftir Sigurð H. Pálsson og Sælla er að […]

Síðustu sýningar á Birtíngi á Selfossi

Nú fer sýningum að ljúka á uppsetningu Leikfélags Selfoss á leiksýningunni Birtíngi sem byggð er á samnefndri sögu eftir franska heimspekinginn Voltaire, í snilldarlegri þýðingu Halldórs Laxness. Aðeins eru 4 sýningar eftir svo nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa marglofuðu sýningu. Sýningunni hlotnaðist sá heiður að vera valinn af valnefnd á NEATA-hátíðina á […]

Emil í Kattholti slær í gegn í Hveragerði

Uppselt var á allar sýningar Leikfélags Hveragerðis á barnaleikritinu Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren í mars og um páskana, og þurfti að vísa fólki frá í sumum tilvikum. Sýningar halda áfram á fullu í apríl og er þegar að verða uppselt á sumar sýningarnar. Sunnlendingar ættu því ekki að láta þessa sýningu fram hjá […]

Margverðlaunuð uppsetning Koršunovas til Íslands

Á Listahátíð í Reykjavík  í vor býðst einstakt tækifæri til að sjá rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í stórbrotinni uppfærslu litháíska leikstjórans Oskaras Koršunovas á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þessi margverðlaunaða uppsetning hefur ferðast um allan heim síðustu tíu ár og kemur til Íslands í samvinnu Borgarleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík. […]

Aðalfundur 2010

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði dagana 1. og 2. maí 2010. Leiklistarhátíð NEATA, sem haldin verður á Akureyri 10.–15. ágúst, verður undirbúin að kvöldi 30. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins.Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2009-2010. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að […]

Fréttir frá Leikfélagi Blönduóss

Leikfélag Blönduóss frumsýndi gamanleikinn Á svið eftir Rick Abbot í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar í Félagsheimilinu á Blönduósi föstudagskvöldið 26. mars sl. að viðstöddum fjölda áhorfenda. Ekki var annað að heyra en leikhúsgestir hafi skemmt sér hið besta og fögnuðu þeir leikurum, aðstoðarfólki og leikstjóra með miklu lófaklappi í lok sýningar.

Leikhúsveisla á Akureyri um páskana

Það verður sannkölluð leikhúsveisla um páskana hjá LA. Eftir skemmtilegan dag í brekkum Hlíðarfjalls eða rólegan dag í fögrum miðbæ Akureyrar, er tilvalið að bregða sér í leikhús! Leikhúsunnendur geta valið um þrjár sýningar, 39 þrep, Horn á höfði og Fúlar á móti auk þess sem boðið verður upp á þriðja leiklesturinn í Leiklestraröð LA […]

Leikhúspáskar á Ísafirði

Það verður líf og fjör í Ísafjarðarbæ um páskana einsog verið hefur í gegnum áratugina. Fjölmargt skemmtilegt verður í boði allt frá rokki til skíðalista. Í leikhúsinu verður líka allt í botni og stuði. Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Litla leikklúbbinn á Ísafirði og Leikdeild Höfrungs á Þingeyri bjóða uppá sérstaka leikhúspáska. Boðið verður uppá þrjár […]

Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Mars

Á fimmtudaginn 25.mars frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um árattur, kenndir og kenjar.  Verkið, sem ber heitið Mars, er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá Útgerð, Hugmyndahúss háskólanna sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af 12 verka röð sem mynda eina […]

Pókók frumsýnt á Hofsósi

Leikfélag Hofóss frumsýnir skopleikinn Pókók eftir Jökul Jakobsson föstudaginn 19. mars kl. 20.30. Leikritið var frumsýnt 1961 en þrátt fyrir aldurinn má segja að efni verksins gæti vel átt við í þjóðfélagi nútímans þar sem græðgi og blekkingar eru aldrei langt undan í viðskiptalífinu. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson sem áður hefur sett upp vinsælar sýningar […]

Kolsvört kómedía um Svein skotta frumsýnd á Ísafirði

Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið frumsýna nýtt íslenskt leikverk í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Verkið nefnist Síðasti dagur Sveins skotta og er eftir Benóný Ægisson og leikhópinn. Hér er á ferðinni kolsvört kómedía um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd árið 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði […]

Gauragangur frumsýndur föstudaginn 19. mars

Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins komandi föstudag 19. mars. Það er ekki auðvelt að vera snillingur, þeir sjá heiminn eins og hann er – gallaðan. Gauragangur er þroskasaga skemmtilegustu andhetju Íslandssögunnar. Rafmagnaður og rokkaður poppsöngleikur eftir Ólaf Hauk Símonarson með tónlist eftir Nýdönsk.

Stúdentaleikhúsið sýnir Hrópíum

Stúdentaleikhúsið frumsýndi verkið Hrópíum föstudaginn 12. mars að Eyjaslóð 9. Verkið er unnið af hópnum undir stjórn Bjartmars Þórðarsonar í svokölluðum „deviced“ stíl eða opnum stíl en Stúdentaleikhúsið vinnur flestar sýningar sínar þannig. Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið síðan um miðjan janúar og mikið af góðu fólki komið að þeirri vinnu.

Margt er skrýtið hjá Leikfélagi Ölfuss

Leikfélag Ölfuss fékk Magnús J. Magnússon til liðs við sig á dögunum til að setja upp frumsamið leikrit með unglingum á aldrinum 14-16 ára. Leitað var eftir áhugasömum unglingum til að taka þátt í þessu verkefni og ellefu hressir krakkar skráðu sig til leiks. Verkið nefnist Margt er skrýtið og er ætlað fyrir börn á […]

Leikfélag Sauðárkróks æfir Fólkið í blokkinni

Hjá Leikfélagi Sauðárkróks eru æfingar á Fólkinu í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson komnar vel í gang. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson sem stýrir Leikfélagi Sauðárkróks nú í fjórða skipti síðan 2005. Skemmtileg tónlist setur sterkan svip á verkið og stýrir Rögnvaldur Valbergsson fjögurra manna hljómsveit sem spilar á sýningum. Yfirsmiður er Kjartan Erlendsson, en […]

Leikfélag NFSu fumsýnir Grís Horror

Leikfélag NFSu leggur þessa dagana lokahönd á nýjasta  sköpunarverk sitt, en það er söngleikurinn Grís Horror. Leikarar og aðrir hafa undanfarna daga unnið hörðum höndum við að gera verkið klárt til sýningar undir harðri hendi leikstjórans Garúnar, og nú er loks farið að sjá fyrir endann á undirbúningsferlinu. Frumsýning verður  föstudaginn 19. mars í Gónhól, […]

Leikfélag MH frumsýnir Veruleikana

Í kvöld, föstudaginn 12. mars kl. 20, frumsýnir Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð leikritið Veruleikarnir í leikstjórn Friðgeirs Einarssonar. Í verkinu er tekist á við hinar eilífu spurningar lífsins og mörkin á milli raunveruleika og óraunveruleika. Sýningin er unnin út frá spuna og er leikhópurinn, ásamt Friðgeiri leikstjóra, höfundur verkins. Hópurinn hefur verið að vinna að […]

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir barnaleikrit

Næstkomandi föstudag, þann 12. mars klukkan 18.00, frumsýnir Leikfélag Keflavíkur leikritið Mér er alveg sama þó einhver sé að hlægja að mér eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur. Leikritið segir frá tröllastelpunni Lónu sem er að byrja í skóla með mannabörnum en á ekki sjö dagana sæla þar sem hún lendir í því að vera lögð í einelti.

Síðustu sýningar á Ufsagrýlum

Nú eru aðeins tvær sýningar eftir á Ufsagrýlum eftir Sjón í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Það er Lab Loki í samvinnu við Hafnarfjarðarleikhúsið sem setur verkið upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Síðustu tvær sýningarnar verða laugardaginn 13. mars. og fimmtudaginn 18. mars. kl. 20.00.

Þjóðleikhúsið frumsýnir Fíusól

Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn í Kúlunni nýtt leikrit eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um hina átta ára gömlu gleðisprengju – Fíusól. Það er ekki ofmælt að það sé mikill áhugi á leiksýningunni um Fíusól og nú þegar er orðið uppselt á allar sýningar fram í miðjan maí! Ástæðan fyrir þessum mikla spenningi liggur vitanlega í því […]

Rose Bruford College með inntökupróf

Einn af fremstu leiklistar- og leikhússkólum í Evrópu, Rose Bruford College of Theatre & Performance verður með inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu Húsinu, Reykjavík, 20. og 21. mars, fyrir inngöngu í september 2010. Skólinn býður upp á faglegt nám á öllum hliðum leikhúss.

Söngleikur um Svein skotta

Æfingar eru hafnar á nýju íslensku leikverki, Síðasti dagur Sveins skotta, en verkið verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Að verkinu standa Kómedíuleikhúsið á Ísafirði og Lýðveldisleikhúsið í Reykjavík en það er ljóðleikur eða söngdans um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi […]

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti

Laugardaginn 13. mars frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren, í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta […]

Aukasýningar á Sjöundá

Halaleikhópurinn frumsýndi 5. febrúar sl. Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar, nýja leikgerð eftir leikstjórann Ágústu Skúladóttur, Þorgeir Tryggvason og leikhópinn. Sýningin hefur vakið mikla athygli og fengið góða dóma. Nú hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningum laugardaginn 13. mars kl. 20.00 og sunnudaginn 14. mars kl. 17.00. Þegar er að verða fullt á fyrri […]

Styrkir til atvinnuleikhópa 2010

Tilkynnt var fyrir skemmstu hvaða atvinnuleikhópar fengju styrk til uppsetninga verka árið 2010. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 95 verkefna auk sjö umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2010 eru alls 64,9 millj.kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð eru 4,5 millj. kr. eyrnamerktar skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna og því ekki til úthlutunar. Samtals er […]

Gullna hliðið í Lyngbrekku

Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudaginn 5. mars kl. 20.30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Hátt í 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur Gullna hliðið unnið sér verðskuldaðan […]

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Lífið liggur við

Fimmtudaginn 4. mars frumsýnir Leikfélag Hörgdæla grafalvarlega skrifstofufarsann Lífið liggur við, eftir Hlín Agnarsdóttur, á Melum í Hörgárdal. Sýningin hefst kl. 20:30. Leikstjóri er Saga G. Jónsdóttir. Þetta er nýlegt leikrit og var fyrst sýnt hjá Stúdentaleikhúsinu árið 2007 í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni gamanleikur, þó með alvarlegum undirtóni, sem gerist á Íslandi í […]

Söngleikurinn Ólafía frumsýndur á Breiðumýri

Leikdeild Eflingar frumsýnir nýtt leikverk, Ólafíu, á Breiðumýri föstudaginn 26. febrúar. Höfundur er heimamaðurinn Hörður Þór Benónýsson og leikstjóri Arnór Benónýsson. Sýningin inniheldur sautján frumsamin lög eftir Jaan Alavere sem jafnframt er tónlistarstjóri sýningarinnar. Alls koma tuttugu og þrír leikarar fram í sýningunni og þá sér fimm manna hljómsveit um tónlistarflutning. Þessi fjölmenni leikarahópur er […]

Hænuungarnir frumsýndir á laugardaginn í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn Hænuungana, nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins. Frumsýning á nýju leikriti eftir Braga Ólafsson telst óneitanlega til tíðinda þar sem Bragi er einn af okkar bestu rithöfundum. Hænuungarnir eru annað leikrit Braga fyrir leiksvið. Hið fyrra, Belgíska Kongó var sýnt við miklar vinsældir í Borgarleikhúsinu fyrir fáum […]

Örverkið Febrúar frumsýnt í Útgerðinni

Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir Febrúar, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar, þann 25. febrúar kl. 12.30 (í hádeginu). Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir og leikarar Árni Pétur Guðjónsson og Hannes Óli Ágústsson. Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, Útgerðinni, Grandagarði 16 2. hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu Herbergi 408. Aðgangur er ókeypis.

Drepfyndinn farsi hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar



Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi 20. febrúar sl. hinn rómaða gamanleik Kjartans Ragnarssonar, Blessað Barnalán. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson en hann hefur leikstýrt fjölda verka hjá leikfélaginu og er skemmst að minnast hinnar bráðskemmtilegu Ráðskonu Bakkabræðra. Blessað Barnalán er sýnt í leikhúsi félagsins í Gamla Lækjarskóla við lækinn í Hafnarfirði. Bent skal á að áhorfendafjöldi er takmarkaður vegna […]

Með blóð á vörum

Næstkomandi laugardag, hinn 20. febrúar, frumsýnir unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi. Hópurinn, sem skipaður er átta upprennandi leikurum, hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.

LR með málþing um Jóhann Sigurjónsson

Leikfélag Reykjavíkur efnir til málþings undir yfirskriftinni Jóhann Sigurjónsson leikskáld – sígildur eða ekki? í Borgarleikhúsinu laugardaginn 20. febrúar og hefst það kl. 11:00 á Litla sviðinu með leiklestri á leikriti Jóhanns Rung læknir sem gefið var út í Danmörku 1905. Sveinn Einarsson leikstýrir þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Jakobi Þór Einarssyni og Láru Jóhönnu Jónsdóttur. […]

Frá upphafi til enda… frumsýnt á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk, Frá upphafi til enda…, þann 19.febrúar næstkomandi í Ungó. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í fimmta sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 6 […]