How to become Icelandic in 60 minutes er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Verkið var frumsýnt í Hörpu 25. maí. How to become Icelandic in 60 minutes er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt er að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar.

Þetta er sprenghlægileg klukkustundarlöng sýning sem ætluð er öllum þeim sem vilja læra hvað það er að vera Íslendingur. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera íslensku þjóðinni vel kunnugt enda hefur samstarf þeirra getið af sér þrjár vinsælar sýningar; Hellisbúann, Pabbann og Afann.
Sýnt næstum daglega kl. 19.00
Nánari upplýsingar og miðasala á midi.is