Galdrakarlinn í Oz fluttur á Þingeyri
Leikdeild Höfrungs á Þingeyri gerir það ekki endasleppt í leiklistinni. Í fyrra var settt á svið ævintýrið um Línu Langsokk sem sló öll met og var sýnt aftur og aftur. Enn er bætt í því núna er það sjálft ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz. Æfingar hafa staðið yfir frá því í lok janúar og nú […]
Minnisvarði í Tjarnarbíói
Leikhópurinn 16 elskendur kynna nýtt verk um sjónarspilið, ástina og samfélög mannanna. Jörðin er sléttari en billjardkúla. Minnisvarði er nýtt verk eftir 16 elskendur þar sem tekist er á við mikilvægi sjónarspilsins innan nútíma samfélags.Á undanförnum áratug hefur hversdagslegt líf einstaklingsins verið gert að stórfenglegu sjónarspili og rík áhersla lögð á möguleika hvers og eins á að […]
Æðisleg uppsetning
Leikfélag KópavogsÓþarfa offarsi eftir Paul Slade SmithLeikstjórn: Hörður Sigurðarson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Óþarfa offarsi er farsi sem hefur fest sig í sessi meðal betri farsa í leikhúslífi enskumælandi þjóða. Hann hefur verið settur upp 155 sinnum, þá aðallega sitt hvoru megin við atlantshafið. Einu löndin sem verkið hefur verið sett upp í, sem hafa ekki ensku […]
Einn kosss enn .. frumsýning 7. mars
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir laugardaginn 7. Mars kl 20.00 leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.
Segulsvið í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 12. mars í Kassanum nýtt leikrit eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Ung kona áttar sig á því að það sér hana enginn í erfidrykkju eiginmannsins sem drap sig úr dugnaði. Hún hefur alltaf verið bakhliðin á eiginmanninum og veit ekki lengur hver hún er.
Billy Elliot í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 6. mars kl 19.00 frumsýnir Borgarleikhúsið stærstu sýningu sem sett hefur verið upp í húsinu en 69 listamenn taka þátt í henni, það eru 34 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.
Frábærlega skemmtilegur farsi
Leikfélag SelfossBót og betrun eftir Michael CooneyLeikstjóri: Jón St. Kristjánsson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Bót og betrun er frábærlega skemmtilegur farsi; vel skrifaður og mjög vel þýddur. Undirrituð fór á frumsýningu, byrjaði fljótlega að gráta úr hlátri og hélt því áfram nokkurn veginn til loka. Það er svo gaman að sjá vel smurðan farsa þar sem […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Gel Foam frá Kryolan. Ætlað til að búa til viðbætur í andlit, s.s. nef, kinnbein, enni, hökur o.þ.h. Þetta eru kubbar úr gelatini sem hita þarf í örbylgjuofni. Þegar efnið er uppleyst og farið að bólgna út er því hellt í mót, látið kólna og síðan losað varlega. Það er nauðsynlegt að púðra efnið vel […]
Litli leikklúbburinn 50 ára
Litli leikklúbburinn á Ísafirði heldur upp á 50 ára afmæli sitt á þessu ári. Og er margt á döfinni á næstu mánuðum. Leikklúbburinn frumsýnir gamanleikinn „Kallarðu þetta leikrit?!“ eftir Ágúst T. Magnússon í Edinborgarhúsinu 21. mars n.k. Um er að ræða samtíma gamanleik með 3 hurðum og söngvum, kossaflensi og kinnhestum. Fjallað er um tilveru […]
Einar Áskell á Brúðuloftinu
Aðstandendur Brúðuheima, þau Bernd Ogrodnik og Hildur M. Jónsdóttir, eru nýkomin heim eftir fjögurra mánaða sýningarferð með sýningu sína Umbreytingu um Suður-Asíu og Mið-Austurlönd. Til að fagna heimkomunni bjóða þau nokkrar sýningar á litríkri sýningu sinni um hinn skemmtilega snáða Einar Áskel á Brúðuloftinu, sem er byggð á sögum Gunillu Bergström, áður en þau halda […]
Arty Hour #11 í Tjarnarbíói
Arty Hour er viðburður á Tjarnarbarnum þar sem listamenn við vinnu í Tjarnarbíó stíga fram og segja frá verkum sínum. Listastundin er mikilvægur þáttur í þeirri stefnu Tjarnarbíós að opna vinnusmiðjur listamanna fyrir áhorfandanum og hvetja til umræðna. Umræðuefnin í listastund Tjarnarbíós í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, ná milli Írans og Íslands, fjalla um Prómeþeif úr […]
Fiðlarinn á þakinu í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið frumsýnir í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, söngleikinn Fiðlarann á þakinu eftir Joseph Stein og Jerry Bock í þýðingu Þórarinns Hjartarsonar. Leikstjórar eru þau Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, tónlistarstjóri er Brynjólfur Brynjólfsson og bróðir hans Ingvar Brynjólfsson sér um leikmynd.
Konan við 1000° á Stóra sviðið
Vegna gífurlegrar aðsóknar verður leikritið Konan við 1000°, sem byggir á vinsælli skáldsögu Hallgríms Helgasonar, frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins fimmtudagskvöld. Verkið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í Kassanum frá því í september og hlotið frábærar viðtökur. Þetta er fyrsta frumsýning leikstjórans Unu Þorleifsdóttur á Stóra sviðinu.
Tíu litlir strandaglópar
HalaleikhópurinnTíu litlir strandaglópar eftir Agöthu ChristieLeikstjóri: Guðjón Sigvaldason. Þýðandi: Hildur Kalman Í fjórða sinn hefur Halaleikhópurinn fengið hinn flinka Guðjón Sigvaldason til þess að leikstýra en fyrri sýningarnar hans þrjár voru hver annarri betri og skemmtilegri. Gaukshreiðrið komst á fjalir Þjóðleikhússins 2008 sem ahyglisverðasta leiksýning þess árs en Fílamaðurinn og Kirsuberjagarðurinn voru ekki síðri uppfærslur. […]
Bót og betrun á Selfossi
Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn, 27. febrúar, gamanleikinn BÓT OG BETRUN eftir Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar boltinn er einu […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Húðlím – Mastix Extra og Mastix Watersoluble frá Grimas. Mastix Extra er sterkt húðlín, notað á skalla, skegg, nef og fleira sem þarf að festa vel. Næst af með Grimas límeyði. Mastix Watersoluble er hægt að fjarlægja með vatni, það heldur ekki eins vel og extra límið en hentar vel þar sem minna reynir á. […]
Sweeney Todd á Hólmavík
Um þessar mundir setur Leikfélag Hólmavíkur upp leiksýninguna Sweeney Todd – morðóði rakarinn við Hafnagötuna. Leikstjóri er Eyvindur Karlsson og í leikarahópnum er góð blanda yngri og reynslumeiri áhugaleikara. Þessi magnaða sýning býður upp á ferðalag um allan tilfinningaskalann – blóð, svita og tár!
Spilltur borgarstjóri og kynsveltur endurskoðandi
Borgarstjórinn liggur undir grun um fjárdrátt og lögreglan undirbýr gildru á móteli til að standa hann að verki. Fljótt kemur í ljós að lögreglufulltrúarnir tveir eru kannski ekki þeir allra hæfustu og samband annars þeirra við kynsveltan endurskoðanda í næsta herbergi einfaldar ekki framvinduna. Þegar við þetta bætast svo óöruggur öryggisvörður úr Ráðhúsinu, illskiljanlegur leigumorðingi og elskuleg borgarstjórafrú er […]
Einn koss enn í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið „Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan“. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, sem vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim […]
Sterkar konur í Tjarnarbíói
Oft er rætt um að þáttur kvenna sé lítill í leiklistarheiminum, en þær Súsanna Svavarsdóttir, Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, Aldís Davíðsddóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir láta svo sannarlega að sér kveða. Þær munu ræða sína sérhæfingu innan greinarinnar þriðjudagskvöldið 17. febrúar kl. 20.00 í Tjarnarbíói.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Penslar úr uxahárum. Henta vel í Grimas vatnslitina. Koma í 5 stærðum; 2, 4, 6, 8 og 10 mm. breiðir. Verð í sömu röð; 445.-, 494.-, 618.-, 741.- og 889.-. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 […]
Workshop/audition hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Sunnudaginn næstkomandi, 15. febrúar, mun Leikfélag Hafnarfjarðar vera með workshop/audition fyrir næstu leiksýningu sína. Vinnubúðirnar verða frá kl. 13 – 17 í Gúttó, Suðurgötu 7, í Hafnarfirði. Sýningin verður devised uppsetning á einu frægasta verki franska absúrdismans; Bubbi kóngur eftir Alfred Jarry. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir sem er að góðu kunn fyrir allt mögulegt.
KADA, leiklistarnámskeið í Tjarnarbíói
KADA, The Kogan Academy of Dramatic Arts, er einn af leiðandi einkaskólum í leiklist á Englandi. Hann er víða þekktur fyrir aðferðir sínar, sem eru byggðar á kerfi Stanislavski. Stofnandi skólans, Sam Kogan, lærði undir nemanda Stanislavski og ákvað að þróa kenningar hans lengra, eftir að hann flutti frá Rússlandi til Englands.
Uppsprettan, breytt tímasetning
Uppsprettan hefur, undanfarin þriðjudagskvöld, staðið fyrir upplestrarröð á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust. Nú er komið að þriðja verkinu sem lesið og í þetta sinn verður leiklesturinn á fimmtudagskvöldið 12. […]
Brennuvargar í Samkomuhúsinu á Húsavík?
Heyrst hefur að tveir brennuvargar hafi hreiðrað um sig á loftinu hjá herra Biedermann, í gamla Samkomuhúsinu á Húsavík. Hvort rétt reynist kemur í ljós kl. 16.00 laugardaginn 7. febrúar þegar Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Brennuvargana eftir Max Frisch í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Bjarni Jónsson þýddi verkið.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Latex (gúmmí mjólk) er fljótandi efni notað til að búa til alls konar aukahluti sem notaðir eru í „special effect“ förðun, s.s. nef, eyru og eiginlega hvað sem er. Þá er efninu penslað í mót og látið þorna og síðan límt á með skegglími. Einnig er hægt að nota það beint á húð þó framleiðendur […]
Björt í sumarhúsi í Tjarnarbíói
Björt í sumarhúsi er nýr íslenskur söngleikur fyrir börn á öllum aldri eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Þórarin Eldjárn. Textinn byggir á ljóðum úr bókinni „Gælur, fælur og þvælur“. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, Kristina Berman gerir leikmynd og búninga. Næatu sýningar eru kl. 13.00 og 15.00 laugardaginn 14. febrúar.
Konan við 1000° á Stóra sviðið
Leikritið Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason hefur nú verið leikið fyrir fullu húsi í Kassanum Þjóðleikhúsinu frá því í september. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum og leikhúsgestum og ekkert lát virðist vera á vinsældum sýningarinnar. Nú er hins vegar svo komið að sýningin verður að víkja úr Kassanum, fyrir Segulsviði eftir Sigurð […]
Kuggur og leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kúlunni 14. febrúar kl. 13.00 nýtt leikrit eftir Sigrúnu Eldjárn um gleðigjafann Kugg og félaga hans. Áður hefur Sigrún skrifað fjölmargar vinsælar bækur um Kugg, Mosa, Málfríði og mömmu hennar, en þetta er í fyrsta sinn sem þau stíga á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Skeggefni (ullarkrep) er fléttuð og lituð lambsull sem hentar vel til að búa til gerfiskegg, barta, augnabrúnir o.þ.h. Skeggefnið er einnig notað til að fela kanta á tilbúnum gerfiskeggjum eða til að búa til skeggstubba. Hárin í fléttunum eru u.þ.b. 15 cm. löng. Skeggefnið kostar 3.088 kr. meterinn og fæst í mörgum litum. Leikhúsbúiðn er […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Tíu litla strandaglópa
Halaleikhópurinn setur á svið morðsögu eftir drottningu glæpasagnanna, Agöthu Christie, Tíu litlir strandaglópar (And then there were none), í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Frumsýning er föstudaginn 30. janúar kl. 20.00. Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september 1992 með það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“ og hefur starfað óslitið síðan. Í þessum hóp er fötlun hvorki […]
Inntökupróf í Rose Bruford
Rose Bruford leiklistarháskólin mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 21. og 22. mars 2015. Rose Bruford er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London. Námið hefst í október 2015.
Arty Hour #10 í Tjarnarbíói
Á síðasta ári voru reglulega haldnir viðburðir í Tjarnarbíó undir nafninu Arty Hour, en þar komu fram þeir listamenn sem voru með vinnustofu eða með verk í vinnslu í Tjarnarbíó. Á morgun verður þeirri hefð haldið áfram. Arty Hour er haldinn á Tjarnarbarnum, aðgangur er ókeypis og að venju eru ljúffengar veitingar í boði á […]
Uppsprettan – skyndileikhús
Næst sýning Uppsprettunnar – skyndileikhúss, verður mánudaginn 9. Febrúar. Uppsprettan, sem hefur verið að hasla sér völl í íslensku leihúslífi, hefur það að markmiði að kynna nýja íslenska höfunda og gefa leikurum og leikstjórum tækifæri á að sýna sig og hæfileika sína. Undanfarið höfum við haldið utan um æfða leiklestra á verkum í fullri lengd […]
Eldbarnið, söfnun á Karolina fund
Skaftáreldar eru sögusvið Möguleikhússins í nýju barnaleikriti, þar sem þessir afdrifaríku atburðir Íslandssögunnar eru séðir frá sjónarhóli barns. Lítil stúlka virðist mega sín lítils þegar veröldin tekur hamskiptum og hætturnar virðast búa við hvert fótmál. En hugrekki og hjartahlýja reynast tryggir förunautar á óvissutímum. Eldbarnið verður frumsýnt í Tjarnarbíói laugardaginn 7. febrúar. Hér er slóð á […]
Danssýning í Frystiklefanum á Rifi
Föstudaginn 30. janúar verður haldin opin sýning á verkinu sem Oupa Sibeko hefur þróað og æft upp í Frystiklefanum. Verkið ber heitið Martröð. Sýningin hefst klukkan 20.00 og tekur um 20 mínútur í flutningi. Ókeypis aðgangur.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Latex skallahettur eru vel teygjanlegar og nokkuð eðlilegar ef þær eru vel settar á. Sníða þarf hettuna til og líma niður allan hringinn. Notið skegglím, ekki vatnsuppleysanlegt. Þegar hettan er komin á er hún förðuð og púðruð og að endingu förðuð aftur með sama lit og notaður er á andlitið. Hægt er að nota hettuna […]
Bót og betrun hjá Leikfélagi Selfoss
Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á farsanum Bót og Betrun eftir enska leikskáldið Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar […]
Nýtt verk frá höfundi Dags vonar
Á morgun, þriðjudaginn 20. janúar kl. 10, verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á nýju verki eftir Birgi Sigurðsson. Er ekki nóg að elska? er raunsæ og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem má ekki koma upp á yfirborðið. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir þar úrvalsliði leikara en Kristbjörg Kjeld fer með aðalhlutverk og […]
Sviðsettir leiklestrar á nýjum verkum
Uppsprettan stendur fyrir upplestri á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói næstu þriðjudagskvöld. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust.
