Litli leikklúbburinn á Ísafirði heldur upp á 50 ára afmæli sitt á þessu ári. Og er margt á döfinni á næstu mánuðum. Leikklúbburinn frumsýnir gamanleikinn „Kallarðu þetta leikrit?!“ eftir Ágúst T. Magnússon í Edinborgarhúsinu 21. mars n.k. Um er að ræða samtíma gamanleik með 3 hurðum og söngvum, kossaflensi og kinnhestum. Fjallað er um tilveru lítils leikfélags úti á landi og leikstjórans að sunnan, og háleitar áætlanir leikfélagsins með nýskrif hirðskálds síns, sem leiðir af sér allan þann misskilning er prýðir ekta gamanleik.

Leikritið var frumflutt á Seyðisfirði, heimabæ höfundar, árið 2008 og fékk góðar viðtökur. Þetta er því í annað sinn sem verkið er sett á svið. Leikstjóri er Kári Halldór og tónlistarstjóri Stefán Jónsson.

Vegleg afmælisdagskrá

Það verður ekki eingöngu sett á svið leikrit. Á afmælisdaginn sjálfan, þann 24. apríl kemur út veglegt 50 ára afsmælisrit. Sama dag opnar sögusýning á Listasafni Ísafjarðar (Gamla sjúkrahúsinu). Þar verður farið yfir sögu Litla leikklúbbsins á lifandi og skemmtilegan hátt. Sýningin mun standa fram í júní. Daginn eftir eða laugardaginn 25. apríl verður sérstök afmælissýning á „Kallarðu þetta leikrit?!“ og um kvöldið munu gamlir sem nýir LL félagar hittast og rifja upp góðar stundir með Leikklúbbnum, því von er á að brottfluttir félagar geri sér ferð vestur og taki þátt í gleðinni.

Stjórn Litla leikklúbbsins mun svo afhenda Safnahúsinu á Ísafirði upptökur af leiksýningum, myndir, leikskrár, veggspjöld og fleira, til varðveislu.

ll2