Arty Hour er viðburður á Tjarnarbarnum þar sem listamenn við vinnu í Tjarnarbíó stíga fram og segja frá verkum sínum. Listastundin er mikilvægur þáttur í þeirri stefnu Tjarnarbíós að opna vinnusmiðjur listamanna fyrir áhorfandanum og hvetja til umræðna.
Umræðuefnin í listastund Tjarnarbíós í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, ná milli Írans og Íslands, fjalla um Prómeþeif úr grísku goðafræðinni, fegurð, stjórnmál, þrýstinginn sem fylgir karlmennskunni og sviðssetningu sjálfsins, svo eitthvað sé nefnt.
Fram koma:
Nazanin Askari og Marta Nordal. Nazanin er fædd í Íran og hefur barist fyrir jafnrétti og frelsi til hugsana og tjáningar. Hún var dæmd til lífshættulegrar refsingar og flúði land. Hún býr nú á Íslandi og ætlar að segja okkur frá upphafi ferðar sinnar. Hún vinnur að því með Mörtu Nordal að setja á svið leikrit byggt á sögu hennar. Þær munu kynna stöðu mála á Arty Hour, bæði persónulega og pólitískt.
Hannes Óli Ágústsson. Hugmynd Hannesar, sem enn er í vinnslu, er innblásin af hinum stóra græna Hulk, en teygir sig út í könnun á skrýmslum og mönnum. Þar kemur fyrir Prómeþeifur, sem í grískri goðafræði stal eldi guðanna og var dæmdur til eilífrar þjáningar í refsiskyni. Hann var áður fyrr álitinn hetja réttlætisins, en Hannes skoðar hann sem fyrsta bókstafstrúarmanninn.
Björn Leó Brynjarsson og Kolbeinn Arnbjörnsson hafa nýlega hafið störf sem dúóið Taka Taka. Þeir setja á svið verkið Frama, en munu vinna gegn og langt út fyrir hefðbundna frásagnalist.
16 elskendur. Tveir af sextán elskendum munu ræða nýtt verk þeirra, Minnisvarða. Þar kanna þau sviðsetningu sjálfsins í nútímasamfélagi og hvernig líf okkar hafa verið samtvinnuð við hinar ýmsu aðferðir myndbirtingar.