Ferðamaður deyr

Um næstu helgi verður áhugasömum boðið að koma á samlestur á leikritinu Ferðamaður deyr hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar.Leikritið er nýr farsi eftir höfundasmiðju leikfélagsins og fjallar um ófyrirséðar afleiðingar af fjölgun ferðamanna og hið íslenska hugvit sem á sér engin takmörk. Verkið er í raun óður til íslenskrar ferðaþjónustu.Leikstjóri verksins verður Ólafur Þórðarson. Hann hefur sótt […]

Fjallið og pólitíkusinn

Um þessar mundir standa yfir æfingar á nýju íslensku verki úr heimi stjórnmálanna hjá Leikfélagi Kópavogs. Þegar Einar ráðherra fær afleita niðurstöður úr skoðanakönnun rétt fyrir kosningar, er aðeins um eitt að ræða. Að koma með svo krassandi hugmynd, svo ótrúlega magnaða, að kjósendur kikna í hnjánum og geta ekki annað en kosið hann aftur. […]

Litla Hryllingsbúðin á Húsavík

Laugardaginn 25. janúar frumsýnir Leikfélag Húsavíkur Litlu Hryllingsbúðina eftir Howard Ashman og Alan Menken í leikstjórn Völu Fannell í Samkomuhúsinu á Húsavík. Litla Hryllingsbúðin er sígildur rokksöngleikur, fyrir alla fjölskylduna, fullur af húmor, kraftmikilli tónlist, heillandi persónum og krassandi söguþræði. Verkið fjallar um erkilúðann Baldur sem lifir frekar óspennandi lífi. Hann eyðir fábrotnum dögum sínum […]

Sæhjarta í Tjarnarbíó

Þann 14. febrúar frumsýnir hið alþjóðlega verðlaunaða Handbendi Brúðuleikhús verkið Sæhjarta, sem er einleikið brúðuverk fyrir fullorðna í Tjarnarbíói. Dularfull kona á drungalegri strönd. Hún er rekald á ströndinni og úrhrak samfélagsins. Verðlaunaleikhúsið Handbendi Brúðuleikhús kynnir þessa nýju, einleiknu og einstöku brúðulistasýningu fyrir fullorðna. Hennar margslungna furðusaga er sögð með heillandi blöndu brúðuleiks og hefðbundins leikhúss. […]

Þjóðsaga til næsta bæjar

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir föstudaginn 7. febrúar nk. nýtt íslenskt leikrit, sem fengið hefur nafnið Þjóðsaga til næsta bæjar. Leikritið er byggt á þjóðsögum Jóns Árnasonar en 200 ár voru liðin frá fæðingu hans sl. haust. Jón skráði og safnaði hundruðum íslenskra þjóðsagna, ævintýra og munnmælasagna um ævina. Sögum sem annars væru án efa flestar gleymdar og […]

Óvenju mjúkar og bragðgóðar kleinur

„Þessar kleinur hérna eru óvenju mjúkar og óvenju bragðgóðar“ Leikfélag Ölfuss frumsýnir Kleinur eftir Þórunni Guðmundsdóttur laugardaginn 8. febrúar í Versölum í Þorlákshöfn. Verkið fjallar um sérvitringinn Sigga, sem er smiður eins og Jesús, og sýnir okkur æviferil hans frá gröf til vöggu. Þórunn skrifaði upphaflega fyrsta þáttinn sem einþáttung og bætti svo við fjórum […]

Óvenju mjúkar og bragðgóðar kleinur

„Þessar kleinur hérna eru óvenju mjúkar og óvenju bragðgóðar“ Leikfélag Ölfuss frumsýnir Kleinur eftir Þórunni Guðmundsdóttur laugardaginn 8. febrúar í Versölum í Þorlákshöfn. Verkið fjallar um sérvitringinn Sigga, sem er smiður eins og Jesús, og sýnir okkur æviferil hans frá gröf til vöggu. Þórunn skrifaði upphaflega fyrsta þáttinn sem einþáttung og bætti svo við fjórum […]

Þjóðsaga til næsta bæjar

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir föstudaginn 7. febrúar nk. nýtt íslenskt leikrit, sem fengið hefur nafnið Þjóðsaga til næsta bæjar. Leikritið er byggt á þjóðsögum Jóns Árnasonar en 200 ár voru liðin frá fæðingu hans sl. haust. Jón skráði og safnaði hundruðum íslenskra þjóðsagna, ævintýra og munnmælasagna um ævina. Sögum sem annars væru án efa flestar gleymdar […]

Sæhjarta í Tjarnarbíó

Þann 14. febrúar frumsýnir hið alþjóðlega verðlaunaða Handbendi Brúðuleikhús verkið Sæhjarta, sem er einleikið brúðuverk fyrir fullorðna í Tjarnarbíói. Dularfull kona á drungalegri strönd. Hún er rekald á ströndinni og úrhrak samfélagsins. Verðlaunaleikhúsið Handbendi Brúðuleikhús kynnir þessa nýju, einleiknu og einstöku brúðulistasýningu fyrir fullorðna. Hennar margslungna furðusaga er sögð með heillandi blöndu brúðuleiks og hefðbundins leikhúss. […]

Kleinur í Ölfusi

Leikfélag Ölfuss frumsýnir Kleinur eftir Þórunni Guðmundsdóttur þann 8. febrúar. Leikstjóri er Árný Leifsdóttir og með hlutverk fara þau Óttar Ingólfsson, Helena Helgadóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir, Telma Rut Jónsdóttir, Ívar Örn Baldursson og Björg Guðmundsdóttir. Verkið sem er í fimm þáttum segir frá ævi Sigga nokkurs. Við fylgjumst með því í öfugri tímaröð, þ.e. frá […]

Djöflaeyjan á Selfossi

Leikfélag Selfoss æfir um þessar mundir leikritið Djöflaeyjuna í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Stefnt er að frumsýningu í lok febrúar. Unnið er með sögurnar Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan eftir Einar Kárason sem og leikgerðir Leikfélags Reykjavíkur og Þjóðleikhússins. Áætluð frumsýning er í lok febrúar.Rúnar Guðbrandsson hefur áður unnið með Leikfélagi Selfoss, fyrst árið 2010 […]

Á sama bekk í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs sýnir leikdagskrána Á sama bekk fimmtudaginn 9. janúar kl. 19.30. Þrír leikþættir eru í dagskránni: Komið og farið eftir Samuel Beckett í þýðingu Árna Ibsen. Leikarar Birgitta Hreiðarsdóttir, Ólöf P. Úlfarsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir, leikstjóri Hörður Sigurðarson.Um það sem skiptir máli eftir Jeannie Webb, leikarar María Björt Ármannsdóttir og Valgerður Rannveig Valgarðsdóttir, þýðandi og leikstjóri […]

Námskeið hjá Opna listaháskólanum

Opni listaháskólinn er með námskeið sem höfða til leiklistaráhugafólks á vorönn. Má þar m.a. nefna námskeiðin Aðferðir leiklistar við kennslu og Textaverk. Alls eru 27 fjölbreytt námskeið í boði á vorönn 2020. Meðal annars hægt að læra um Skapandi starf í tónlistarnámi, fræðast um Sýningargerð og sýningarstjórnun, sækja glænýja námskeiðið Listir og göngur, kynna sér Aðferðir leiklistar í kennslu og […]

Helgi Seljan – minningarorð

Helgi Seljan, fyrrum formaður Bandalags íslenskra leikfélaga er látinn. Helgi var einn af öflugustu félögum hreyfingarinnar um árabil. Hann tók þátt í leikstarfi sem ungur maður og starfaði með Leikfélagi Reyðarfjarðar frá stofnun þess árið 1959 allt þar til hann hóf störf á leiksviði stjórnmálanna.  Helgi var stjórnarmaður í BÍL á árunum 1966-1976 og gegndi […]

Lokað yfir hátíðarnar

Að venju loka Bandalag íslenskra leikfélaga, Leikhúsbúðin og Vefverslunin yfir jól og áramót. Að þessu sinni lokum við frá og með 20. desember og opnum aftur 2. janúar. Njótið aðventunnar og jólagleðinnar!

Jólaævintýri Þorra og Þuru

Börnin fá sinn skammt af leiklist fyrir þessi jól. Leikhópurinn Miðnætti sýnir Jólaævintýri Þorra og Þuru í Tjarnarbíói. Þorri og Þura eru að undirbúa jólin. Þegar afi Þorra þarf að bregða sér frá biður hann þau að passa jólakristalinn sem er uppspretta allrar jólagleði í öllum heiminum. En það gengur alls ekki nógu vel hjá […]

Hvað er svart, hvítt og þýtur um á hjólum?

Nemendasýning á vegum Kvikmyndaskóla Íslands verður í Leikhúsinu, samastað Leikfélags Kópavogs föstudaginn 13. desember. Að verkinu standa 2. önn leiklistarbrautar og 3. önn handritadeildar Kvikmyndaskólans. Sveitin vs. Borgin. Fimm einstaklingar. Leyndarmál. Átök. Upplausn. Leikverkið er eftir þá Arnar Má og Axel Frans í samráði við leikara og í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar.  Frítt er inn á […]

Heimsfrumsýning á Skógarlífi

Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir barnaleikritið Skógarlíf helgina 13.-15. desember nk.  Leikritið er sett upp í nýrri leikgerð leikstjórans Gretu Clough sem unnið hefur til alþjóðlegra verðlauna bæði sem leikskáld og sviðslistamaður.Er því um heimsfrumsýningu að ræða.  Leikgerðin er byggð á The Jungle book eftir Rudyard Kipling. Verkið segir þroskasögu Móglís sem elst upp meðal dýra […]

Leiklistarvefurinn lifir enn

Eins og margir hafa tekið eftir hafa verið tæknilegir örðugleikar á Leiklistarvefnum undanfarið, aðallega tengdir leikritasafninu. Nú virðist sem tekist hafi að lagfæra það og vonum við að það sé til frambúðar. Ef ráða má af viðbrögðum í formi símtala og tölvupósta vegna þessara vandamála, er leikritasafnið mikið notað, ekki bara af leikfélögunum heldur fjölmörgum […]

Leikfélag Norðfjarðar sýnir Óþarfa offarsa

Leikfélag Norðfjarðar setur nú upp í ár sína sjöttu sýningu eftir að leikfélagið var endurvakið. Að þessu sinni er það farsinn Óþarfa offarsi eftir Paul Slade Smith sem hefur orðið fyrir valinu. Leikritið segir frá lögreglu sem undirbýr gildru á móteli til að standa spilltan borgarstjóra að verki. Fljótt kemur í ljós að lögreglumennirnir tveir […]

Saumastofan á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson fös. 22. nóvember. Leikstjóri er Skúli Gautasonar. Saumastofan er eitt þekktasta verk höfundar og er reglulega sett upp hjá áhugaleikfélögunum. Verkið gerist árið 1975 og segir frá degi í lífi starfsfólks á saumastofu. Óvænt afmælisveisla meðan yfirmaðurinn bregður sér frá, verður til þess að losnar um málbeinið á […]

Saga Donnu Sheridan – Mamma mía

Leikfélag Framhaldsskólans á Norðurlandi vestra, Sauðárkróki frumsýnir á föstudag söngleikinn Saga Donnu Sheridan – Mamma mía. Þarna er um nýja leikgerð að ræða, sem byggð er á tónlist ABBA, á handriti Catherine Johnson og þýðingu Þórarins Eldjárn. Um nýja söngtexta og senur er að ræða í líflegri, fallegri og fjörugri uppsetningu byggð á þekktu verki. […]

Söng- og raddbeitingarnámskeið á Selfossi

Leikfélag Selfoss býður upp á áhugavert söng- og raddbeitingarnámskeið sunnudaginn 24. nóvember. Kennari verður Kristjana Stefánsdóttir, djass-söngkona og söngkennari. Kristjana er aðjúnkt við LHÍ, ásamt því hefur hún unnið við raddþjálfun leikara bæði í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Einnig hefur hún aðstoðað tónlistarfólk í Idol, X-Factor, Eurovision o.fl. Kristjana styðst við Complete Vocal tæknina frá Catrine […]

Stórfínn Gauragangur á Melum

Það fylgir því alltaf spenningur að fara í leikhús og það var ekkert öðruvísi þetta kvöld þegar við komum á Mela í Hörgárdal til að sjá hið sígilda ungmennaleikrit Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson. Uppsetninginn er í höndum Leikfélags Hörgdæla og leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Gauragangur fjallar um ástir og örlög sjálfskipaða snillingsins Orms […]

Bylur í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar í samstarfi við tónlistardeild Listaskóla Mosfellsbæjar æfir um þessar mundir nýjan söngleik sem ber heitið Bylur. Sagan gerist á afskekktu hóteli í ónefndum bæ á Þorláksmessu, en þar sjá nokkrir strandaglópar fram á að þurfa að eyða jólunum saman sökum blindbyls sem herjar á bæinn.Þarna fléttast saman sögur alls konar fólks sem er […]

„Við getum ekki bjargað þeim öllum“

Harpa Rún Kristjánsdóttir skrifar um Gestagang hjá Hugleik Ef ykkur langar til að berja raunverulegan glymskratta augum, þá er tækifærið núna, á Sölvhólsgötu 13. Hann bíður ykkar í anddyrinu, þegar komið er á sýningu leikfélagsins Hugleiks á nýjum söngleik Þórunnar Guðmundsdóttur, Gestagangi. Gestagangur er sjálfstætt framhald söngleiksins Stund milli stríða sem valin var Áhugaleiksýning ársins […]

Litla hryllingsbúðin á Skaganum

Skagaleikflokkurinn frumsýnir hinn sívinsæla söngleik Litlu Hryllingsbúðina eftir Howard Ashman og Alan Menken föstudaginn 15. nóvember. Allt síðan söngleikurinn var fyrst settur á svið árið 1982 hefur hann farið sigurför um heiminn og verið settur upp í fjölmörgum löndum ár hvert. Sagan segir frá ungum blómasala sem dag einn finnur undarlega plöntu sem á eftir […]

Heimsendir hjá Stúdentaleikhúsinu

Stúdentaleikhúsið frumsýnir verkið Heimsendi eftir Aron Martin Ásgerðarson þann 19. nóvember næstkomandi klukkan 20 í Sölvhólsgötu 13 (Gamli LHÍ). Heimsendir er gamanleikrit sem gerist í afmælisveislu hins eigingjarna Matthíasar sem er haldin sama dag og heimsendir á að gerast. Gestirnir eru mættir, kökur á borðunum og veislustjórinn reynir að halda uppi stemmningunni meðan gestirnir deila um ómerkilegustu mál þrátt […]

Ólag á Leikritasafni

Ólag hefur verið á Leikritasafninu hér á vefnum undanfarið vegna tæknilegra vandamála. Hægt er að senda póst á info@leiklist.is eða hringja í síma 551-6974 ef þörf er á upplýsingum um leikrit í safninu.

Síðustu sýningar á Línu

Leikfélag Sauðárkróks hefur sýnt Línu langsokk undanfarnar vikur við góða aðsókn. Nú eru aðeins tvær sýningar eftir, í dag þri. 5. nóv. og á morgun 6. nóv. kl. 18.00. Nánari upplýsingar um sýninguna eru á Facebooksíðu félagsins. Hér má svo sjá Línu syngja lag úr sýningunni.

Gestagangur hjá Hugleik

Leikfélagið ​Hugleikur​ frumsýnir nýjan söngleik eftir ​Þórunni Guðmundsdóttur​ laugardaginn 9. nóvember. Verkið heitir ​Gestagangur​ og gerist á stríðsárum seinni heimstyrjaldarinnar í Reykjavík.Heimsstyrjöldin síðari er hafin og Íslendingar reyna eftir bestu getu að haga seglum eftir vindi. Þegar Bretar hernema landið finna ráðamenn leiðir til að mata krókinn og breskir hermenn reyna að vingast við heimamenn, […]

Byrjendanámskeið í leiklist hjá LH

Leikfélag Hafnarfjarðar stendur fyrir byrjendanámskeiði í leiklist fyrir 18 ára og eldri. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 6. nóvember. Námskeiðið er ætlað byrjendum í leiklist og er öllum opið sem eru félagar í Leikfélagi Hafnarfjarðar. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Gísli Björn Heimisson, Stefán H. Jóhannesson og Aðalsteinn Jóhannsso. Á námskeiðinu verður leitast við að kynna fyrir nemendum […]

Lína frumsýnd á Austurlandi

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnirbarnaleikritið Línu Langsokk þ. 5. nóvember, í hátíðarsalnum í Alþýðuskólanum á Eiðum.Sjónarhóll verður sem sagt á Eiðum í nóvember, þar sem Lína verður með apa sinn, herra Níels og hestinn. Hún er sjóræningjadóttir sem er prakkari en líka hjartahlý stúlka sem elur sig sjálf upp með harðri hendi. Lína á fulla tösku af […]

Saumastofan á Hólmavík

Í lok nóvember frumsýnir Leikfélag Hólmavíkur Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson. Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hólmavík en Skúli Gautason sinnir leikstjórn. Sett hefur verið saman hljómsveit að þessu tilefni svo von er á mikilli gleði. Aldurssamsetning hópsins spannar í það minnsta 50 ár en samstaða er mikil og æfingar ganga vonum framar.Að venju stefnir Leikfélagið […]

Leiklestrar hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Í vetur verður Leikfélag Hafnafjarðar með verkefni sem gengur undir nafninu Leiklestrarkvöld LH. Stefnan er að leiklesa hin ýmsu verk t.d. verk sem eru á fjölum leikhúsanna, gamla klassík eða jafnvel ný verk.Fyrirkomulagið er þannig að þeir sem hafa áhuga á að taka þátt þurfa að tilkynna sig með a.m.k. viku fyrirvara. Útbúinn verður sérstakur […]

Leiksmiðja á Selfossi

Leikfélag Selfoss stendur fyrir leiksmiðju í aðdraganda uppsetningar leikárið 2019-2020. Að þessu sinni er það hinn margrómaði Rúnar Guðbrandsson sem mætir vaskur til leiks. Rúnar hefur komið áður við sögu Leikfélags Selfoss því árið 2017 leikstýrði hann Kirsuberjagarðinum eftir Chekov og árið 2012 Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Rúnar hefur sett upp fjölda sýninga hjá sjálfstæðum […]

Lína langsokkur í Eyjum

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir Línu Langsokk í kvöld, föstudaginn 18. október. Rauðhærða ofurkvendið Lína er sérlega vinsæl þetta misserið þar sem þetta er önnur sýningin af þremur sem fara á fjalirnar hjá leikfélögunum í haust. Ísey Heiðarsdóttir leikur óþekktarorminn hana Línu Langsokk. Hún segir að Lína sé draumahlutverkið hennar enda nokkuð lík Línu með rautt hár […]

Rocky í Tjarnarbíói

Verðlaunasýningin ROCKY! í flutningi leikhópsins Óskabarna ógæfunnar verður sýnd á Íslandi í fyrsta skipti 18. október næstkomandi. Um er að ræða glænýtt danskt verk eftir einn mest spennandi leikhúsmann Danaveldis, Tue Biering. Verkið vakti mikla athygli á síðasta ári fyrir að taka á frumlegan hátt á erfiðu málefni. Við elskum öll söguna af Rocky, lúsernum […]

Gauragangur í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar fimmtudagskvöldið 17. október. Ormur Óðinsson er 16 ára snillingur og töffari og rétt að klára grunnskólann. Vinir, hugsjónir, fjölskylda, skoðanir, ljóð, óvinir, skóli og ást flækjast saman í tvísýnu spili um hug hans og hjarta. Gauragangur er drepfyndin og háalvarleg þroskasaga einnar […]