Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir barnaleikritið Skógarlíf helgina 13.-15. desember nk.  Leikritið er sett upp í nýrri leikgerð leikstjórans Gretu Clough sem unnið hefur til alþjóðlegra verðlauna bæði sem leikskáld og sviðslistamaður.
Er því um heimsfrumsýningu að ræða.  Leikgerðin er byggð á The Jungle book eftir Rudyard Kipling. Verkið segir þroskasögu Móglís sem elst upp meðal dýra í frumskóginum og lendir í ýmsum hættum og ævintýrum.

Áhorfendur fá að kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum sögupersónum, tónlist og hönnun undir indverskum áhrifum í framsetningu fjölbreytts og hæfileikaríks hóps fólks úr Húnaþing vestra. Leikflokkurinn hefur vakið athygli undanfarin ár fyrir vandaðar og áhugaverðar sýningar og skemmst að minnast uppsetningar þeirra á Hárinu sem valin var Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2019.

Sýningarnar verða 13.-15. desember nk. og fer miðasala fram á vef leikflokksins.