Leikfélagið ​Hugleikur​ frumsýnir nýjan söngleik eftir ​Þórunni Guðmundsdóttur​ laugardaginn 9. nóvember. Verkið heitir ​Gestagangur​ og gerist á stríðsárum seinni heimstyrjaldarinnar í Reykjavík.
Heimsstyrjöldin síðari er hafin og Íslendingar reyna eftir bestu getu að haga seglum eftir vindi. Þegar Bretar hernema landið finna ráðamenn leiðir til að mata krókinn og breskir hermenn reyna að vingast við heimamenn, ekki síst stúlkurnar.
Nýr fangavörður hefur tekið við Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og það kemur í hans hlut að hýsa óheppnar stúlkur, bæði þær sem komast í kast við ástandslögin og aðrar sem eiga einfaldlega ekki í önnur hús að venda.
Á þessum viðsjárverðu tímum telst það meiri synd að búa til líf en að granda þeim í bardögum. Njósnir og gagnnjósnir eru stundaðar og lögreglan reynir að hafa stjórn á bæjarlífinu. Gestir koma og fara og skilja eftir sig spor, sum stærri en önnur.
Sýnt er í fyrrum Nemendaleikhúsinu við Sölvhólsgötu. Leikstjóri er ​Þorgeir Tryggvason​ en alls taka rúmlega þrjátíu manns þátt í sýningunni.
Gestagangur ​er sjálfstætt framhald af söngleiknum ​Stund milli stríða​ sem Þórunn Guðmundsdóttir skrifaði fyrir Hugleik fyrir fimm árum. Stund milli stríða var valin Áhugaleiksýning ársins 2014 og var því sýnd í Þjóðleikhússinu það sama ár.
Miðapantanir eru á vef félagsins.