Author: lensherra

Nýjar spennandi vörur í Leikhúsbúðinni

Nú nálgast Hrekkjavakan óðfluga og margir örugglega farnir að velta fyrir sér gerfum og aðferðum. Leikhúsbúðin var að fá tvö frábær sett á alveg ótrúlegu verði, annars vegar Sugar Skull Kit og hins vegar Zombie Kit. Settið kostar ekki nema 6.750 kr. stk. Zombie settið inniheldur: Fresh Scratch sultublóð, 15 ml Cine-Wax 10 g 1 Spaði F/X Blóð, 50 ml Liquid Latex, 30 ml Tannlakk Translucent Powder 20 g Spirit Gum (húðlím) 12 ml Cream Color Circle, Black Eye Púðurkvasti 1 Make-up Svampur Taska Sugar Skull settið inniheldur: 2 Make-up Penslar 3 Aquacolor litir, 8 ml Skrautsteinar Supracolor Clown White...

Sjá meira

Snertu mig – ekki!

Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! verður frumsýnt föstudaginn 16. september hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra eða, eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns. Snertu mig – ekki! er eftir Örn Alexandersson, en leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Örn og Sigrún hafa lengi starfað með Leikfélagi Kópavogs en félagið á 60 ára afmæli á þessu nýhafna leikári. Verkið tekur um klukkustund í flutningi og taka þrír leikarar þátt í sýningunni, þau Anna Margrét Pálsdóttir, Arnfinnur Daníelsson og Guðný Hrönn Sigmundsdóttir. Lýsing er í höndum Skúla Rúnars Hilmarssonar, Hörður...

Sjá meira

Ubbi kóngur sækir um að fara til Monaco 2017

Þann 1. september sl. rann út frestur til að sækja um að fara með íslenska leiksýningu á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco sem haldin verður í ágúst 2017. Tvær umsóknir bárust og skipaði stjórn Bandalagsins því þriggja manna valnefnd sem skilaði af sér þann 10.  september. Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi: Valnefnd vegna alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Mónakó árið 2017 hefur komið saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu.  Tvö leikfélög sóttu um með leiksýningu á hátíðina: Leikfélag Hafnarfjarðar með Ubba kóng. Höfundur: Alfred Jarry Þýðing: Steingrímur Gauti Kristinsson Tónlist og söngtextar: Eyvindur Karlsson, Þórarinn Eldjárn og Karl Ágúst Úlfsson Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leikfélag Mosfellsbæjar...

Sjá meira

SENDING eftir Bjarna Jónsson

Laugardaginn 10. september kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu nýtt verk eftir eitt okkar fremsta leikskáld, Bjarna Jónsson. Leikstjóri er Marta Nordal. Gretar Reynisson gerir leikmynd og Stefanía Adolfsdóttir búninga. Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er barist í Palestínu og Bubbi Morthens túrar með Egó um landið til þess að kynna nýjustu plötu sveitarinnar: Breyttir tímar. Ungur drengur hefur verið sendur í fóstur til barnlausra hjónaleysa vestur á fjörðum. Konan tekur drengnum opnum örmum en tilfinningar mannsins eru flóknari og ekki líður á löngu þar til líf hjónanna umturnast. Veruleiki drengsins og hjónaleysanna virðist á einhvern undarlegan...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert