Author: lensherra
Bransadagur sviðslistanna 20. maí
Leiklistarvefurinn | maí 8, 2026 | Fréttir |
Bransadagur sviðslistanna 2026 fer fram miðvikudaginn 20. maí frá 9:30 – 16:00 í Þjóðleikhúskjallaranum. Þetta er helsti samkomustaður greinarinnar — dagur til að hittast, ræða og hugsa saman um sviðslistir á Íslandi. Þema dagsins er „Sviðslistir á tímum breyttrar heimsmyndar”. Hvaða sviðslistir viljum við skapa á þessum tímum og fyrir hvern eru þær? Hvernig stöndum við saman á óvissutímum? Boðið verður upp á dagskrá sem er uppfull af hugvekjandi erindum og áhugaverðum umræðum. Sem dæmi má nefna nokkra dagskráliði: „Opnunarávarp ráðherra”: Logi Einarsson menningar- , nýsköpunar- og háskólaráðherra opnar viðburðinn. „Sviðslistir á tímum breyttrar heimsmyndar”: Gréta Kristín Ómarsdóttur á...
Sjá meiraHrakhólar 12 hjá Halaleikhópnum
Leiklistarvefurinn | maí 4, 2026 | Óflokkað |
Halaleikhópurinn frumsýndi Hrakhóla 12 persónudrifna satíru með alvarlegum undirtón þ. 27. apríl síðastlinn. Meðlimir leikhópsins sköpuðu saman verkið undir leiðsögn Rúnars Guðbrandssonar leikstjóra og Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur sviðshöfundar. Síðasta sýning á Hrakhólum 12 verður sunnudaginn 10. maí, kl. 17.00. Hrakhólar 12 fjallar um íbúa fjölbýlishúss, ættingja þeirra og aðra óboðna gesti sem rápa inn og út, í óþökk Söndru umsjónarmanns fasteigna. Þegar Helena listakona flytur inn á móður sína tímabundið, bankar fortíðin upp á sem og nágrannar sem vantar ýmist egg eða leiðsögn í lífinu. Helena hefur lifað, upplifað, brunnið út og risið upp. Hún er eins og fuglinn...
Sjá meiraRocky Horror er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026
Leiklistarvefurinn | maí 2, 2026 | Fréttir |
Sýning Leikfélags Húsavíkur á Rocly Horror var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ásdís Þórhallsdóttir tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í lok Bandalagsþings í Reykjanesbæ í kvöld. Halla Rún Tryggvadóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Leikfélags Húsavíkur. Úr umsögn dómnefndar: Dómnefndin er snortin að sjá hversu margar, fjölbreyttar, metnaðarfullar og áhugaverðar sýningar fóru upp innan raða BÍL á liðnum vetri. Þetta er magnað út af fyrir sig og stóð dómnefndin því frammi fyrir ómögulegu verkefni. Sýningin sem þó varð fyrir valinu eftir ítarlegar umræður og vandlega umhugsun vakti athygli af ýmsum ástæðum. Ljóst er að mörg handtök fóru...
Sjá meiraOpnunartímar
Vörur
-
Gervinef - Foam Nose frá Kryolan
kr.2.970
-
Mascaraburstar fíber 25 stk.
kr.1.090
-
Thin & Fix - fyrir FX Design Colors
kr.2.190
Nýtt og áhugavert
-
Gerviauga
kr.1.970
-
Mastix Spirit Gum Remover & Thinner, Kryolan
kr.1.420 – kr.2.080Price range: kr.1.420 through kr.2.080
-
Eyru latex
kr.3.240
-
Sugar Skull Kit
kr.8.320


