Author: lensherra

Sóley Rós ræstitæknir

Frumsýningin í Tjarnarbíói laugardaginn 10. september kl. 20.30. Sóley Rós er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona.Verkið er byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver sem er gæti kiknað undan. Sóley Rós er einstök persóna. Hún er Bjartur í Sumarhúsum, hún er Þóra í Hvammi. Meinfyndið og grátbroslegt verk um samtímann sem tekur á mikilvægum málefnum sem allir hafa skoðanir á og varða okkur öll. „Þú veist ekkert hvernig líkaminn á mér virkar. Það stendur ekki í neinni bók.”Höfundar leikverks: María Reyndal og Sólveig Guðmundsdóttir....

Sjá meira

Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum

Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum hefst sunnudaginn 11. september. (5 skipti, 17 klst.) Staður: Dansverkstæðið, Skúlagata 30, Reykjavík. Tími: Sunnudagar kl. 12:00-15:0o (engin æfing 2. okt) Lokaæfing 16. okt. 12:00-17:00 Verð: 11.500 Kennari: Ine Camilla Bjørnsten Takmarkað pláss! Hafið samband á ahaettuatridi@arcticaction.no Nánari upplysingar um námskeiðið á ensku: Beginner workshop in stage fighting over 5 Sundays (17 hours), 11.september – 16.oktober. Sundays 12:00-15:00 (no training 2. okt) Last training 16. okt. 12:00-17:00 Workshop fee: 11.500 ISK Teacher: Ine Camilla Bjørnsten Small group! Sign up on e-mail: ahaettuatridi@arcticaction.no What is Stage Combat? Stage combat, or ‘stunt fighting’, is the art of creating and performing choreographed fights for an audience, in...

Sjá meira

Opið hús hjá Borgarleikhúsinu og nýtt leikár kynnt

Laugardaginn 3. september opnar Borgarleikhúsið allt upp á gátt og býður alla velkomna í heimsókn milli klukkan 13:00 og 16:00. Að venju verða skoðunarferðir um húsið, innlit á æfingar og atriði á Stóra sviðinu. Villi vísindamaður mun kynna dagskrána í forsalnum. Hannes og Smári taka lagið og Lalli töframaður og ofurhetjurnar Óður og Flexa leggja undir sig Litla sviðið.  Einnig eru búningar og hárkollur til sýnis, tæknifikt, og að sjálfsögðu verða vöfflur og kaffi í boði. Dagskrá vetrarins var nýlega kynnt með útgáfu Borgarleikhúsblaðsins og er leikárið afar fjölbreytt og öllu tjaldað til. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt...

Sjá meira

Act alone leiklistarhátíðin sett í 13. sinn

Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, verður haldin í þrettánda sinn 11. – 13. ágúst næstkomandi. Hátíðin er haldin í sjávar- og einleikjaþorpinu Suðureyri við Súgandafjörð. Eins og nafnið gefur til kynna er hátíðin helguð einleiknum og er eina sinnar tegundar á landinu – ef ekki bara á öllum Norðurlöndunum. Margt er fleira einstakt við Act alone því það er ókeypis á alla viðburði hátíðarinnar. Dagskrá ársins var kunngjörð fyrir skömmu og er óhætt að segja að hún sé alveg einleikin. Act alone á Suðureyri bíður að vanda uppá eitthvað fyrir alla, konur, karla og krakka á öllum aldri. Boðið...

Sjá meira

Einleikur í Tjarnarbíói

“Barry and his Guitar“ er söngleikur á ensku þar sem leikarinn, grínistinn og tónlistarmaðurinn Bragi Árnason fer með öll hlutverkin í eigin verki. Aðeins ein sýning í Tjarnarbíói, laugardaginn 13. ágúst kl. 20:30. Við kynnumst Barry, feimnum en viðkunnalegum ungum draumóramanni, sem vinnur á kaffihúsi í London. Hann bæði syngur og spilar á gítar. Einn dag lendir hann upp á kant við eitt af glæpagengjum borgarinnar og á það eftir að hafa ófyrirséðar afleiðingar í för með sér. Grínævintýri úr stórborginni, stútfullt af skemmtilegum lögum, litríkum persónum og einlægum boðskap. Handrit, lög og textar eru eftir sjálfan Braga Árnason....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert