Author: lensherra

ENGI – Töfrandi brúðusýning

Sunnudaginn 2. október kl. 15:00 verður brúðuleikritið ENGI sýnt í Tjarnarbíói.  Handbendi – Brúðuleikhús, atvinnuleikhús norðurlands vestra, kynnir Engi, frumsamið brúðuverk fyrir börn 3+, skapað af Gretu Clough. Sýningin var frumflutt í London síðasta sumar, og hefur verið sýnd um allt England síðan. Engi verður aðeins sýnt nokkrum sinnum á Íslandi og aðeins einu sinni í Tjarnarbíói. Tíminn breytir öllu. Í mannlausri framtíð er það bara grasið sem man hvernig hlutirnir voru. Komdu að hitta dýrin og skordýrin sem bjuggu á enginu og sjáðu sögur þeirra vakna til lífsins. Brúðuleikhúsið Handbendi endurvekur brúðuleiksýningu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Sagan er...

Sjá meira

Ársrit 2015–16 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2015–2016 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með því að senda póst á info@leiklist.is. Útprentað og gormað kostar ritið 4.000 kr. Pantanir þurfa að hafa borist fyrir 15. október...

Sjá meira

Barna- og unglinganámskeið að hefjast

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga hefjast hjá Leikfélagi Kópavogs mán. 26. sept. og standa fram í desember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6.-7. bekkur) og hinsvegar fyrir 8. bekk og upp úr, þ.e. unglinga á aldrinum 13-16 ára. Hámarksfjöldi er 10 á hvort námskeið. Námskeiðin standa í 10 vikur og verða vikulega á mánudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp en kl. 17.15-19.15 hjá eldri. Í lok námskeiðs sýna hóparnir stutt, frumsamin leikrit. Leiðbeinendur eru Guðmundur L. Þorvaldsson og Gríma Kristjánsdóttir. Guðmundur er m.a. menntaður frá New York Film Academy auk fjölmargra námskeiða í leik og leikstjórn. Guðmundur sá...

Sjá meira

Blái hnötturinn í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 24. september kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason í nýrri leikgerð eftir Berg Þór Ingólfsson. Kristjana Stefánsdóttir semur nýja tónlist við verkið, Chantelle Carey er danshöfundur og 22 börn svífa um á stóra sviðinu. Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til „jarðar“ með miklum látum. Í reyknum mótar fyrir skuggalegum verum og þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir...

Sjá meira

Snertu mig – ekki! í Kópavogi

Höfundur Örn Alexandersson Leikstjórn Sigrún Tryggvadóttir Ljós Skúli Rúnar Hilmarsson  Leikmynd Þorleifur Eggertsson  Hljóð Hörður Sigurðarson Þann 16. september síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki, eftir Örn Alexandersson. Þetta var á degi íslenskrar náttúru en hún kemur þó ekki við sögu í leikverkinu, umfjöllunarefnið er þvert á móti náttúruleysi, nánar tiltekið kynferðislegt getuleysi hjá miðaldra Íslendingi. Örn Alexandersson er gamall innanbúðarmaður hjá Leikfélagi Kópavogs og þar hefur hann afrekað flest sem hægt er að afreka í einu leikhúsi, en það verður ekki rakið hér. Örn hefur skrifað tvö barnaleikrit og fjölda leikþátta sem sýndir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert