Author: lensherra

Jólaævintýri Hugleiks frumsýnt

Hugleikur frumsýnir í Tjarnarbíó Jólaævintýri Hugleiks, laugardaginn 19. nóvember kl. 20.00. Leikfélagið ræðst nú í það stórvirki að setja upp leikgerð af Jólaævintýri Dickens. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðangsefni leikhúsfólks frá því hún kom út árið 1843.  Söguna þekkja flestir, klassísk saga sem öll fjölskyldan getur notið saman, og er kjörin til að koma fólki í jólaskap. En að sjálfsögð láta Hugleikarar sér ekki nægja að fara einföldu leiðina að efninu, heldur flytja atburðna úr Lundúnaþoku nítjándu aldar inn í íslenskt sveitaumhverfi.  Hann Ebenezer gamli Skröggur er nú kominn inn í íslenska nítjándu aldar baðstofu, Tommi litli leikur sér að legg og skel og draugarnir þrír eru íslenskar skottur og mórar. Og þrátt fyrir dramatískan undirtón sögunnar er vörumerki Hugleiks að ærslast með efniviðinn og gera hann að sínum. Höfundar eru þau Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Snæbjörn Ragnarsson og Þorgeir Tryggvason. Með hlutverk Ebenezers Skröggs fer Björn Thorarensen, en alls standa um tuttugu manns á sviðnu. Leikstjórn er í höndum höfunda. Sýningar fara fram í Tjarnarbíói og standa yfir fram í miðjan desember, auk tveggja sýninga milli jóla og nýjárs. Í sýningunni eru fjölmörg sönglög sem þegar hafa verið hljóðrituð og gefin út á geisladiski sem verður til sölu í miðasölu. Um undirleik sér hljómsveitin Forynjur og draugar, en þar eru m.a. innanborðs félagar úr hljómsveitunum Ampop, Hraun og Innvortis,...

Sjá meira

Trainspotting frumsýnt hjá Leikfélagi Keflavíkur

Föstudaginn 18. nóvember frumsýnir Leikfélag Keflavíkur verkið Trainspotting eftir Irvine Welsh í Frumleikhúsinu í Keflavík. Þýðing verksins er eftir Megas, en leikstjóri er Jón Marinó Sigurðsson. Með aðalhlutverk fer Rúnar Berg Baugsson, en þetta er hans frumraun á sviði. Í sýningunni er sviðsleik blandað saman við vídeósýningu og var leitast við að ná fram kaldranalegum raunveruleika þess heims eiturlyfjaneytandans sem verkið snýst um. Á sýningum um helgar verður síðan starfrækt kaffihús í Frumleikhúsinu eftir sýningar. Fyrstu sýningar sem fyrirhugaðar eru: Frumsýning: Föstudag 18. nóvember kl. 21.00 2. sýning: Sunnudag 20. nóvember kl. 21.00 Miðaverð kr. 1500 Miðasölusími 421 2540, opinn 2 tímum fyrir...

Sjá meira

Frumsýning í Hveragerði

Ástir liggja til allra átta – kramin hjörtu? Leikfélag Hveragerðis verður með kaffileikhús í nóvember í húsi félagsins, Völundi við Austurmörk.  Frumsýning verður laugardaginn 19. nóvember kl 20.30. Sýndir verða þrír einþáttungar: Bara innihaldið og Á sama bekk eftir hugleikarann Sævar Sigurgeirsson  og Afturelding eftir annan hugleikara, Þórunni Guðmundsdóttur. Alls fara 7 leikarar með 9 hlutverk í þáttunum og er leikstjóri Sigurður Blöndal.    Sýningar eru sem hér segir: 2. sýning sunnudag 20. nóvember 3. sýning miðvikudag 23. nóvember 4. sýning föstudag 25. nóvember 5. sýning sunnudag 27. nóvember Allar sýningar hefjast kl 20.30 en húsið opnar kl 20:00.  Miðapantanir eru í síma 483-4727.  Miðaverð er kr. 1500,  fyrir ellilífeyriþega/öryrkja/hópa kr....

Sjá meira

Sex í sveit slær í gegn á Iðavöllum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir um þessar mundir verkið Sex í sveit eftir Marc Camoletti í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar. Skemmst er frá því að segja að sýningin hefur slegið í gegn eystra og uppselt var á þrjár af fjórum fyrstu sýningunum. Bætt hefur verið við aukasýningum til að anna eftirspurn.  Framundan eru sýningar sem hér segir.    Föstudagur 18. nóvember kl. 20  Laugardagur 19. nóvember kl. 15  Laugardagur 19. nóvember kl. 20  Föstudagur 25. nóvember kl. 20  Laugardagur 26. nóvember, kl. 20  Föstudagur 2. desember, kl. 20  Laugardagur 3. desember, kl. 20    Miðapantanir eru í síma 846 2121 eða á Bókasafni Héraðsbúa....

Sjá meira

Helgarnámskeið í bardagatækni á sviði

The Nordic Stage Fight Society (NSFS) heldur helgarnámskeið í tækni og sviðshreyfingum með langstaf í Reykjavík síðustu helgina í nóvember. Þjálfun með staf er mjög góð undirstaða undir sviðsslagsmál með hvers konar vopnum og á þetta vopn sér sögulega hefð í mörgum menningarheimum. Námskeiðið verður haldið helgina 25.-27. nóvember, frá föstudegi til sunnudags. Nánari tímasetningar: Föstudag: 19.00-21.00 Laugardag: 10.00-18.00 Sunnudag: 12.00-18.00 Kennari: Ine Camilla Björnsten, formaður NSFS Verð: 8.000 Fjöldið þátttakenda mest 14 manns. Þetta er byrjendanámskeið en farið verður nokkur hratt yfir sögu. Undirstöðuþjálfun í bardagatækni með berum höndum eða öðrum vopnum kemur þátttakendum að góðum notum en er þó ekki skilyrði fyrir þátttöku. Skráning í netfangi inefights@gmail.com Frekar má lesa sér til um þessa bardagahefð...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert