Frumsýning hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 26. nóvember leikritið “Hin endanlega hamingja”. Höfundur og leikstjóri er Lárus Húnfjörð. “Hin endanlega hamingja” var unnin og skrifuð á æfingatímabilinu. Freysteinn, andlegur leiðtogi Helgidóms hinnar endanlegu hamingju er horfinn á brott. Mun söfnuðurinn jafna sig á þessu áfalli? Tæklar Sigurmar nýja hlutverkið sem leiðtogi? Heldur Elínborg, ekkja Freysteins sönsum? Er Ingunn kona Sigurmars sátt við sitt hlutskipti? Eru Herlaugur og Fjóla dóttir Freysteins trúlofuð eða ekki. Kemur tónlistarstjórinn Hallgerður Ugla til með að halda lagi? Þessum spurningum verður kannski svarað á samkomu í Helgidóminum. Þó getur hugsast að allt öðrum spurningum verði svarað. “Hin...
Sjá meira


