Móttaka ráðherra í Norræna húsinu

Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra menningarmála, bauð fulltrúum þeirra félaga sem fengu styrk í ár, til móttöku í Norræna húsinu þriðjudaginn 7. nóvember. Ráðherra bauð fulltrúana velkomna og hélt stutta tölu þar sem hún kom inn á ótvírætt gildi þess starfs sem áhugafélögin sinna um land, allt ekki bara menningarlega heldur ekki síður félagslega. Lilja rifjaði m.a. […]

25th Drama / Theatre in Education Conference 2024

25th Drama / Theatre in Education Conference 2024 (22nd to 27th of March, 2024 in Retz, Lower Austria) Maybe you have noticed the Drama in Education Conference in Retz, Lower Austria!! Maybe you are interested in this Conference in March 2024. The main topic is SHARING & CARING – every child matters. The Place of […]

Rúi og Stúi í Tungunum

Laugardaginn 21. október sl. frumsýndi Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna barna og fjölskylduleikritið RÚI og STÚI eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðarsonar. Þetta er öflug fjölskyldusýning sem höfðar til allra aldurshópa og heldur athygli allan tímann, sem er galdur barnasýninga! Ég var mættur á frumsýninguna. Það er alltaf sérstök stemning […]

Litla hryllingsbúðin í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis sýnir um þessar mundir söngleikinn vinsæla um Litlu Hryllingsbúðina. Litla Hryllingsbúðin er sígildur söngleikur, fullur af húmor, góðri tónlist, heillandi persónum og krassandi söguþræði. Baldur Snær þrælar alla daga í blómabúð Markúsar á Skítþró og dreymir um ástir Auðar, en hún er í tygjum við leðurklæddan tannlækni með kvalalosta. Dag einn uppgötvar Baldur […]

Leikhúsbrellur og förðun – opið námskeið hjá Hugleik

Hugleikur stendur fyrir tveggja daga námskeiði í leikhúsbrellum (special effects) í förðun lau. 21. og sun. 22. október. Þátttakendur læra að nota latex og vax við sáragerð og aðrar leikhúsbrellur. Þau læra um bestu aðferðir og val á réttum litum fyrir marbletti, sár, hrukkur og fleira. Vilji þátttakendur fræðast um fleiri atriði í leikhúsförðun gefst […]

NEATA Network verkefninu lokið

NEATA Network verkefninu lauk í Reykjavík í síðustu viku. NEATA eða Norður-Evrópsku Áhugaleikhússamtökin eru samstarfsvettvangur áhugaleikhússambanda á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Síðastliðið ár hafa fulltrúar NEATA-landanna níu, unnið að því að styrkja tengslanetið ásamt því að þróa nýjar leiðir til að vinna saman. Fulltrúarnir funduðu í Helsinki síðastliðið haust, í Vilnius í mars og lokahnykkurinn var í […]

Leikfélag Sauðárkróks sýnir Benedikt búálf

Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi söngleikinn um Benedikt búálf síðastliðinn föstudag. Benedikt búálf þekkja vel flestir, um er að ræða einn allra þekktasta barnasöngleik þjóðarinnar og skemmtilegt ævintýri eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson með grípandi lögum og tónlist sem Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson gerði og söngtextar eftir Andreu Gylfadóttir og Karl Ágúst Úlfsson. Sýningin var fyrst sett upp á […]

Skertur opnunartími

Vegna fundar NEATA samtakanna hér á landi verður skertur opnunartími í Þjónustumiðstöð og Leikhúsbúð mán. 9. – fim. 12. október. Opið verður kl. 11.30-13.00 þessa daga. Vefverslunin er sem ávallt opin allan sólarhringinn.

Ársrit BÍL 2023

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga árið 2023 er komið út. Í því eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna á liðnu leikári auk svipmynda úr sýningum og annars efnis. Ársritið má skoða hér og/eða hlaða því niður: Ársrit BÍL 2023 – léttútgáfa stakar síður Ársrit BÍL 2023 – léttútgáfa opnur Ársrit BÍL 2023 – […]

Halaleikhópurinn ræður leikstjóra

Halaleikhópurinn hefur ráðið Pétur Eggerz til að leikstýra leikhópnum í vetur. Skrifað var undir samninginn á almennum félagsfundi í Halanum þann 26. sept. Verið er að skoða ýmis leikrit og verður það kynnt þegar það verður ákveðið.  Pétur Eggerz er fæddur og uppalinn í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu. Eftir nám í bókmenntafræði við Háskóla […]

NEATA Workshops – Öllum opnar vinnustofur 21. október

NEATA_Workshop Day

NEATA býður upp á 7 spennandi og fjölbreytt, námskeið/vinnustofur á vefnum, laugardaginn 21. október næstkomandi. Námskeiðin sem fara fram á ensku á Zoom, eru ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram hér. Nánari upplýsingar um námskeiðin, efni þeirra og kennarana má sjá í þessum PDF bæklingi. Hér að neðan má sjá námskeiðin og vinnustofurnar […]

Lokað á Þjónustumiðstöð 1. – 4. sept.

Lokað verður á Þjónustumiðstöð fös. 1. sept. og mánudaginn 4. sept. Erindum í tölvupósti er svarað en Leikhúsbúðin er lokuð þó auðvitað sé hægt að versla í vefversluninni  allan sólarhringinn. Pantanir eru þó ekki afgreiddar fyrr en þri. 5. sept. Sendið fyrirspurnir og erindi á info@leiklist.is.

Leikklúbbur Laxdæla

Formaður: Ólöf Halla Bjarnadóttir olofhalla72@gmail.com 6920594 Ritari: Rosemary Lilja Ríkharðsdóttir rosemary@simnet.is 7727221 Gjaldkeri: Þuríður Siguðardóttir mottaka@dalir.is 8667731 Meðstjórnandi: Viðar Jóelsson Meðstjórnandi: Dagný Karlsdóttir

Sumarlokun 11. júlí

Þjónustumiðstöð BÍL er lokuð vegna sumarleyfa frá 11. júlí. Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er ávallt opin. Erindum í tölvupósti til info@leiklist.is er svarað fljótt og vel. Þjónustumiðstöðin opnar að nýju þriðjudaginn 8. ágúst.

NEATA Youth á Scenoskop

NEATA Youth tók þátt í listahátíðinni Sceoskop í Danmörku dagana 10.-14. maí. Ísland átti þar tvo fulltrúa, þau Söru Rós Guðmundsdóttur og Svein Brimar Jónsson. Sara Rós sendi okkur eftirfarandi skýrslu um hátíðina og vinnubúðir NEATA Youth: NEATA Youth workshop í Odense í Danmörku 2023 NEATA Youth heldur áfram að blómstra og fengum við tækifæri […]

Ályktun frá aðalfundi BÍL

Á nýliðnum aðalfundi Bandalagsins var eftirfarandi ályktun samþykkt: Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga í Neskaupstað 6. maí 2023, lýsir yfir vonbrigðum með þann drátt sem orðið hefur á að framlengja rekstrarsamning Menningar- og viðskiptaráðuneytisins við samtökin. Nú er liðið hátt á annað ár síðan síðasti langtímasamningur rann út í árslok 2021 og síðan hefur mikil óvissa […]

Aðalfundur BÍL í Neskaupstað

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var haldinn í Neskaupstað um helgina. Guðfinna Gunnarsdóttir lét af störfum sem formaður og Ólöf Þórðardóttir var kjörin í hennar stað. Fundurinn gekk í alla staði vel fyrir sig og vel staðið að allri skipulagningu hjá Leikfélagi Norðfjarðar sem var gestgjafi. Vala Fannel frá Þjóðleikhúsinu mætti á fundinn og skýrði frá […]

Leikfélag Vestmannaeyja í Þjóðleikhúsið

Rocky  Horror, sýning Leikfélags Vestmannaeyja varð fyrir valinu sem Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2023. Vala Fannel dómnefndarfulltrúi tilkynnti valið á hátóiðakvöldverði eftir aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga í Neskaupstað. Umsögn dómnenfdar fer hér á eftir: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í þrítugasta og fyrsta sinn. Að þessu sinni sóttu alls tólf leikfélög […]

Leikfélagið Lauga

Formaður: Guðmundur Jensson gummijens@outlook.com Gjaldkeri: Sóley Jónsdóttir soleyjons71@gmail.com Ritari: Nanna Aðalheiður Þórðardóttir bubbi@simnet.is 8657491 https://www.facebook.com/leikfelagidlauga

Lokað fös. 28 apríl

Þjónustumiðstöð BÍL verður lokuð föstudaginn 28. apríl. Sendið póst á info@leiklist.is ef erindið er áríðandi.

Leikklúbbur Laxdæla sýnir Vodkakúrinn

Leikklúbbur Laxdæla frumsýndi Vodkakúrinn eftir Kristlaugu M. Sigurðardóttur, í leikstjórn Ólafar Höllu Bjarnadóttur síðastliðna helgi. Þrátt fyrir að vera í góðu starfi og eiga fallegt heimili hefur Eyja áhyggjur af því hve langt (eða stutt) sé eftir af barneignaraldri hennar. Meðfram því þreifar hún sig áfram með megrunarkúra og reynir að eiga samtal við elskhuga […]

Á svið á svið á Króknum

Leikfélag Sauðárkróks æfir þessa dagana leikritið Á svið eftir Rick Abbot. Þýðandi er Guðjón Ólafsson og leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Sýnt er í Bifröst á Sauðárkróki. Á svið  er leikrit um leikhóp sem er að setja upp leikrit, fyrsti og annar þáttur er æfing á verkinu og þar er ýmislegt sem kemur upp á. Í […]

Skógarbrúðkaup á Sólheimum

Leikfélag Sólheima frumsýndi að venju á Sumardaginn fyrsta. Í ævintýraskóginum hittum áhorfendur hinar ýmsu ævintýrapersónur eins og Mikka ref, Öskubusku, Rauðhettu, Karíus, Baktus og Kaktus og fleiri. Margvíslegar breytingar hafa átt sér stað í lífi þeirra og umhverfi sem þau reyna að takast á við. Þegar konungurinn býður öllum í brúðkaupsveislu Prinsins, með ákveðnum skilyrðum, […]

Blíða og Dýrið á Blönduósi

Leikfélag Blönduóss hefur legið í dvala í hartnær áratug en nú verður aldeilis breyting þar á. Leikfélagið setur nú á svið fjölskyldusýninguna Dýrið og Blíða eftir Nicholas Stuart Gray. Ungur og ferskur leikhópur tekur þátt í sýningunni og er það hinn reyndi leikstjóri, Sigurður Líndal sem stýrir hópnum.  Eins og forynja félagsins, G. Eva Guðbjartsdóttir orðar […]

Hugleikur sýnir Húsfélagið

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir leikritið Húsfélagið laugardaginn 15. apríl næstkomandi. Verkið kemur sjóðheitt úr hinni afkastamiklu höfundasmiðju félagsins. Áratugum saman hafa húsfélög stigaganga A og B í Fögruhlíð 84 unnið hlið við hlið í sátt og samlyndi en aðskilin þó. Nú er kominn tími til að sameina þau í eitt og þá er friðurinn úti. Erjur, forboðnar […]

Rocky Horror í Eyjum

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir um þessar mundir hið magnaða verk Rocky Horror eftir Richard O’Brien, en verkið var sýnt þar seinast fyrir rúmum 20 árum síðan. Er þetta verk númer 183 og mikið hefur verið lagt í að gera það hið glæsilegasta. Leikstjóri verksins er Árni Grétar Jóhannsson. Ljósahönnuður er Björn Elvar Sigmarsson. Hljóð er í […]