Á nýliðnum aðalfundi Bandalagsins var eftirfarandi ályktun samþykkt:

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga í Neskaupstað 6. maí 2023, lýsir yfir vonbrigðum með þann drátt sem orðið hefur á að framlengja rekstrarsamning Menningar- og viðskiptaráðuneytisins við samtökin. Nú er liðið hátt á annað ár síðan síðasti langtímasamningur rann út í árslok 2021 og síðan hefur mikil óvissa ríkt með starfsemi Þjónustumiðstöðvarinnar og samtakanna. Tveir skammtímasamningar hafa með eftirgangsmunum verið gerðir á þeim tíma.  Þeir skammtímasamingar hafa haldið starfseminni á floti en sú óvissa sem verið hefur með rekstrargrundvöll samtakanna er óásættanleg til lengdar. 

Ekki bætir úr skák að í skammtímasamningunum er kveðið á um lækkun á framlagi frá fyrri tíð. Þetta gerist þrátt fyrir að framlag til samtakanna hafi verið skorið niður um nær helming í kjölfar efnahagserfiðleikanna fyrir rúmum áratug og hafi aldrei verið leiðrétt síðan. 

Þjónustumiðstöð BÍL þjónustar nær alla þá aðila sem stunda leiklist á landinu og fyrir utan eigin aðildarfélög má þar m.a. nefna stofnanaleikhúsin, frjálsa leikhópa, grunn- og framhaldsskóla auk kvikmyndafyrirtækja og margra fleiri. Mikilvægi hennar fyrir sviðslistir á landinu er óumdeilanlegt þó ekki fari það alltaf hátt.  Aðalfundur BÍL skorar á ráðherra menningarmála og Menningar- og viðskiptaráðuneytið að bæta hér úr svo fljótt sem auðið er.