Stórkostlegt!
Leikfélagið Grímnir og leikdeild Grunnskóla Stykkishólms sýna nú rokkóperuna Jesus Christ superstar eftir Tim Rice og tónlistin er eftir Andrew Lloyd Webber. Í íslenskri þýðingu Níelsar Óskarssonar hefur þetta verk hlotið hafnið Jesús Guð Dýrlingur. Það þarf mikinn metnað og kjark til að takast á við slíkt verk í rúmlega þúsund manna byggðarlagi. Ég gerði mér ferð í Stykkishólm til að sjá þessa sýningu. Þegar ég gekk í salinn sést ekkert annað en spýtnahrúga á gólfinu. Skyndilega birtist hópur ungmenna og ræðst á hrúguna og hljómsveit byrjar að spila. Ungmennin virðast taka hvert sína spýtu og ganga ákveðnum skrefum...
Sjá meira


