Vestrið eina frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 7. nóvember verður leikritið Vestrið eina eftir írska leikskáldið Martin McDonagh, frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikritið er fimmta verk leikskáldsins sem sýnt er á íslensku leiksviði og er hann því með ástsælustu leikskáldum landsmanna nú um stundir. Þröstur Leó Gunnarsson og Björn Thors leika óviðfelldna en um leið frekar brjóstumkennanlega bræður sem í kjölfar mikilla sviptinga, ákveða að reyna að lifa í sátt, iðrast og fyrirgefa hvor öðrum áralangar illdeilur og hatur. En leiðin til aukins þroska er erfið. Hnyttin samtöl og bleksvartur húmor einkenna þetta alvöru gamanverk. Það er Jón Páll Eyjólfsson sem leikstýrir, en hann...
Sjá meira


