Author: lensherra

Lápur, Skrápur og jólaskapið

Þann 29. nóvember næstkomandi verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson. Það mun vera seinni frumsýning á verkinu þetta árið því þann 22. nóvember frumsýndi Leikfélag Akureyrar sama verk í Rýminu. Sýningarnar verða keyrðar samhliða og þykir það harla óvenjulegt að tvær uppsetningar á sama verkinu séu sýndar á sama tíma. Það er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson sem leikstýrir á Akureyri en Anna Bergljót Thorarensen sunnan heiða. „Það eru allir komnir í jólaskapið í Grýluhelli. Allir nema Lápur og Skrápur. Grýla er ekki sátt við þessa syni sína og sendir þá af stað til að...

Sjá meira

Kúlukvöld Unima

Í vetur stendur UNIMA (alþjóðleg samtök brúðuleikhúsfólks) fyrir svokölluðum ,,Kúlukvöldum“ í lok hvers mánaðar í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu (að Lindargötu 7). Þar verða gestir leiddir inn í töfrandi heim brúðuleikhússins með lifandi og fjölbreyttri dagskrá. Miðvikudaginn 26. nóvember kl 20:00 verður haldið síðasta Kúlukvöldið fyrir jól. ,,Áhrifamáttur leikbrúðunnar“ Dagskrá kvöldsins: Hugleiðingar um áhrifamátt brúðuleikhússins Hallgrímur Magnússon, geðlæknir á Landspítalanum, fjallar um áhrifamátt brúðuleikhússins. Hallgrímur hefur í yfir 50 ár haft mikinn áhuga á brúðuleikhúsi og séð brúðuleikhússýningar í ýmsum löndum. Ég gleymi því sem ég heyri, ég man það sem ég sé en skil það sem ég geri Bergljót...

Sjá meira

Steinar í djúpinu frumsýnt

Föstudaginn 21. nóvember mun Lab Loki frumsýna Steinar í djúpinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Steinar í djúpinu er nýtt íslenskt leikverk, byggt á skáldheimi Steinars Sigurjónssonar, aka: Bugði Beygluson, Steinar á Sandi, Sjóni Sands o.s.frv. Hér er ekki um að ræða leikgerð á einu tilteknu verki eftir hann, heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans höfundarverk og að hluta til í ævi hans og örlög. Verkið er vegferð um “kvasseggjað grjót”, ferðalag um sagnaheim Steinars; um þorpið þar sem lúin þil lykta af hlandi og svita og fullir dusar blanda í svartan dauðann; um ægifegurðir og erkiljótleika djúpsins sem...

Sjá meira

Grunnnámskeið í leiklist með Ágústu Skúladóttur

Leikfélag Hafnarfjarðar heldur á næstunni námskeiði í leiklist fyrir byrjendur sem lengra komna þar sem farið verður í grunnatriði leiklistarinnar. Leitast verður við að leysa úr læðingi frumorku, einlægni og sköpunargleði leikarans samband hans kannað við sjálfan sig, meðleikara og áhorfendur. Unnið verður með líkamsbeitingu, textameðferð, liðsheild og hópsál á sviði. Þá verða kennd undirstöðuatriði í trúðsleik og unnið með frjálslegan og skemmtilegan spuna. Leiðbeinandi verður Ágústa Skúladóttir sem undanfarin ár hefur kennt sambærileg námskeið í skóla bandalagsins í Svarfaðarardal sem og víða um heim.   Námskeiðið er þrjár vikur, hefst 26. nóvember næstkomandi og stendur til 15. des....

Sjá meira

Söng- og leikprufur fyrir Vínland

Freyvangsleikhúsið stendur fyrir opnum söngprufum fyrir söngleikinn Vínland í Freyvangi, laugardaginn 22.11. frá 13:00 – 16:00. Allir sem geta sungið og leikið eru velkomnir. Ingólfur Jóhannsson mun sitja við píanóið og spila undir lög að vali þátttakenda. Leikstjórinn, Ólafur Jens Sigurðsson, verður að sjálfsögðu á staðnum. Æfingartíminn verður í janúar og fram að frumsýningu um miðjan febrúar. Vínland er fjölmennur söngleikur eftir Helga Þórsson sem gerist á tímum víkinga meðal norrænna manna á Grænlandi og svo færist sögusviðið yfir til Vínlands í Ameríku. Sagan fjallar um; ástir og örlög, kristni og heiðni, víkinga og indjána, gleði og sorgir en...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert