Author: lensherra

Viltu vera vinur minn á FACEBOOK?

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir laugardaginn 4. apríl nýtt spunaleikverk um heitasta netfyrirbæri síðari ára, Facebook. Aðalpersóna verksins uppgötvar töfraheim Facebook og sogast smám saman inn í hann með ýmsum afleiðingum á líf hennar. Leikstjóri er Anna Brynja Baldursdóttir og ellefu leikarar skipta á milli sín hlutverkum. Sýningin er unnin af leikstjóra og leikhóp með "devised theatre"" aðferðum. Hugmyndavinna og æfingar hófust í lok febrúar og hefur ferlið því verið stutt en snarpt. Sýningin er ekki löng en bráðskemmtileg og stútfull af húmor, tónlist, slúðri og vænum skammti af hinu áhugaverða fyrirbæri sem FACEBOOK er. Nánari upplýsingar má fá á...

Sjá meira

Hin illa dauðu í Keflavík

Leikfélag Keflavíkur sýnir um þessar mundir söngleikinn Hin illa dauðu sem byggður er á kvikmyndunum góðkunnu Evil dead, Evil dead 2 og Evil dead 3. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Hörður S. Dan brá sér á sýninguna og hér má fræðast um hvernig hann upplifði hana. Til að byrja með er vert að nefna þýðingu verksins, en leikhópurinn sá um hana. Nú veit ég ekki hver samdi verkið upphaflega en lokaniðurstaðan er þrælskemmtilegur texti. Leikritið byrjaði rólega, var það sísti parturinn í verkinu, en mjög fljótlega byrjaði spennan og kolsvarti húmorinn að sýna sitt rétta andlit. Voru oft...

Sjá meira

Héri Hérason frumsýndur á Siglufirði

Leikfélag Siglufjarðar hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur. Í febrúar bretti fólk upp ermarnar og var hafist handa við æfingar á gamanleikritinu Héri Hérason eftir Coline Serreau. Guðjón Sigvaldason er leikstjóri en hann hefur áður unnið með Leikfélagi Siglufjarðar, síðast árið 2006 þegar Láttu ekki deigan síga Guðmundur eftir Eddu Björgvinsdóttir og Hlín Agnarsdóttur var sett upp. Frumsýnt verður föstudaginn langa, 10. apríl. Leikfélagið hefur fundið nýja sýningaraðstöðu í bænum, hús sem er staðsett að Norðurgötu 24 og er þekkt í daglegu tali sem Sigló. Hús þetta hefur áður hýst t.d. niðursuðuverksmiðju og rækjuvinnslu og virðist ætla að gegna...

Sjá meira

Aðalfundur Bandalags ísl. leikfélaga 2009

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Hótel Hlíð í Ölfusi dagana 1. og 2. maí 2009. Fundurinn verður settur föstudagsmorguninn 1. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil laugardaginn 2. maí. Fundargestir eru boðnir velkomnir fimmtudagskvöldið 30. apríl. Engin skipulögð dagskrá er þá um kvöldið en fólk getur farið á leiksýningu hjá Leikfélagi Selfoss, notið þess að fara í heita pottinn eða bara spjallað hvort við annað.   Fundargerð aðalfundar 2008 er á vefsíðunni leiklist.is undir Bandalagið/Fundir og verður ekki send út. Skv. lögum Bandalagsins hafa aðeins þau aðildarfélög atkvæðisrétt á aðalfundi sem greitt hafa árgjöldin. Dagskrá...

Sjá meira

Sex í sveit í Biskupstungum

Föstudaginn 3. apríl frumsýnir Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna gamanleikinn Sex í sveit eftir Marc Camoletti í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Aratungu og hefjast sýningar kl. 20.30. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Leikurinn gerist í sumarbústað úti á landi. Húsráðandi hefur boðið hjákonu sinni í heimsókn yfir helgi, því eiginkonan ætlar að heiman.  Frúin hættir við á síðustu stundu, hjákonan er mætt og nú eru góð ráð dýr. Margt fer öðruvísi en áætlað var… Boðið er upp á léttan leikhúsmatseðil fyrir sýningarnar á Kaffi Kletti í Reykholti. Borðapantanir eru í síma 486-1310 og 847-5057. 2. sýning laugardaginn...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert