Tónlistarskólinn í Reykjavík sýnir tvær óperur
Föstudagskvöldið 3. apríl verða sýndar tvær óperur í uppfærslu Tónlistarskólans í Reykjavík í samvinnu við Íslensku óperuna. Þessi óperusýning sætir nokkrum tíðindum, því hér er um að ræða annars vegar frumflutning á nýrri íslenskri óperu, Gilitrutt eftir Þórunni Guðmundsdóttur, og hins vegar frumflutning á Íslandi á fyrstu óperu Rossinis, La cambiale di matrimonio. Leikstjórn er í höndum Þórunnar Guðmundsdóttur og hljómsveitarstjóri er Kjartan Óskarsson. La cambiale di matrimonio (Hjónabandssamningurinn) var samin af Gioachino Rossini (1792 1868) á örfáum dögum árið 1810, þegar hann var aðeins átján ára gamall. Hún er fyrsta ópera hans sem flutt var opinberlega. Librettóið er eftir Gaetano...
Sjá meira


