Metnaðarfullt gaman á Seltjarnarnesi
Jóhanna Ástvaldsdóttir og Grétar Guðni Guðmundsson eru bæði stofnfélagar í Leiklistarfélagi Seltjarnarness sem hefur verið starfrækt frá árinu 1998. Þau ásamt öðrum meðlimum leiklistarfélagsins vinna nú að uppsetningu verksins Margt býr í þokunni eftir William Dinner og William Morum í þýðngu Ásgerðar Ingimarsdóttur. Verkið, sem er í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar, verður frumsýnt 19. apríl í félagsheimili Seltjarnarness og er því mikið um að vera hjá þeim félögum á lokasprettinum enda mikill metnaður að baki sýningarinnar. Um tilurð leiklistarfélagsins segja þau Sigríði Þorvaldsdóttur leikkonu hafa verið hvatakonu að stofnun félagsins fyrir rúmum áratug en þá hafði ekki verið starfrækt leikfélag...
Sjá meira


