Aukasýningar á Jóni Oddi og Jóni Bjarna
Sunnudaginn 31. október frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks barna- og fjölskylduleikritið um eðaldrengina Jón Odd og Jón Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur. Áætlaðar voru 8 sýningar og var uppselt á flestar þeirra svo nú hefur verið ákveðið að bæta tveimur sýningum við. Þessa góðu aðsókn má líklega að nokkru leyti rekja til þess að miðaverð var lækkað umtalsvert í tilefni þess að nú hefur Leikfélag Sauðárkróks sýnt barnaleikrit á haustin 10 ár í röð. Er miðaverð á sýninguna því einungis 1000 krónur. Þá hefur foreldrafélag Árskóla niðurgreitt leikhúsmiða fyrir yngstu bekkina undanfarin ár, en ákvað í ár að 1., 2. og 3....
Sjá meira


