Author: lensherra

Fjölskyldusýningar í Tjarnarbíói

Næsta sunnudag mun Grímuverðlaunasýningin Bólu Hjálmar í uppsetningu Stopp leikhópsins ríða á vaðið sem fyrsta fjölskyldusýnininginn í Tjarnarbíó. Tjarnarbíó ætlar að vera með sem vera með eitthvað fyrir fjölskylduna alla sunnudaga í nóvember og desember. Sirkus Sóley verður svo með tvær sýningar næstu tvær helgar á eftir. Í upphafi aðventu mætir svo Augasteinn í uppsetningu Á senunni aftur í Tjarnarbíó en verkið var frumsýnt þar fyrir 7 árum síðan. Snuðra og Tuðra á vegum Möguleikhússins ætla líka að líta við í byrjun desember með Jólarósirnar sínar. Algjör Sveppi – dagur í lífi stráks verður svo sýnt á milli jóla...

Sjá meira

Leikfélag Siglufjarðar leitar leikstjóra

Leikfélag Siglufjarðar leitar að leikstjóra sem mun mæta til starfa í janúar eða febrúar 2011.  Leikfélag verður 60 ára á næsta ári og hefur hug á að setja upp veglega sýningu af því tilefni. Áhugasamir geta sent formanni leikfélagsins, Vibekku Arnardóttur,  tölvupóst á netfangið vibearn@simnet.is...

Sjá meira

Bólu-Hjálmar í Tjarnarbíói 7. nóvember

Stoppleikhópurinn sýnir sunnudaginn 7. nóvember kl. 14.00 í Tjarnarbíói verðlaunaleikritið  Bólu-Hjálmar en leikritið er byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars en sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem Barna- og unglingasýning ársins 2009. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Aðeins verður þessi eina sýning. Verkið var frumsýnt 22 maí 2008 í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýnt var í grunnskólunum og á dögunum var leikhópnum boðið til Færeyja með sýninguna og hlaut hún þar einróma lof. Núna gefst fjölskyldufólki því einstakt tækifæri á að sjá sýninguna.Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að...

Sjá meira

Harry og Heimir á Akureyri

Nú er komið að því að þeir félagar Harry og Heimir sæki Akureyri heim. Þetta sprenghlægilega svakamálaleikrit verður sýnt í Samkomuhúsinu og verður fyrsta sýningin 5. nóvember. Harry og Heimir er gestasýning frá Borgarleikhúsinu, þar sem hún hefur verið sýnd fyrir troðfullu húsi alls 125 sinnum. Einkaspæjararnir óborganlegu Harry og Heimir flækjast inn í dularfullt hvarf eiginmanns hinnar undurfögru Díönu Klein. Þeir fara alla leið til Transylvaníu og þurfa að takast á við illmennið og söngleikjanördinn Doktor Frank N Steingrímsson. Þeir þurfa líka að kljást við skrímslið Rúrik og ekki síður að bera fram nafn þorpsins Trawitzenfikopfendorf.  Já Trawitzenfikopfendorf!...

Sjá meira

Beðið eftir græna kallinum

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikritið Beðið eftir græna kallinum laugardaginn 30. október. Gríma Kristjánsdóttir leikstýrir sex manna hópi ungra leikara í verkinu sem samið er í spunavinnu af leikstjóra og hópi. Leikritið fjallar um hóp fólks sem notar öll brögð til að komast yfir það sem það girnist. Leikarar í sýningunni eru Anna Guðrún Torfadóttir, Bjarni Magnús Erlendsson, Hanna Rún Jónasdóttir, Hrefna Ósk Jónsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Selma Rán Vilhelmsdóttir Lima. Arnar Ingvarsson hannaði lýsing, hljóðmynd var í umsjá Helga Rafns Ingvarssonar og Grímu Kristjánsdóttur og búningar og leikmynd í umsjá leikstjóra og hóps. Sýningarstjóri er Þórdís Sigurgeirsdóttir.Sýnt...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert