Author: lensherra

Leikfélagið Grímnir frumsýnir þrjú leikverk á einum mánuði

Mikill kraftur er í Leikfélaginu Grímni í Stykkishólmi um þessar mundir en félagið frumsýnir þrjú leikrit núna á einum mánuði. Nú þegar hefur Grímnir frumsýnt einþáttunginn Kvöldhúm í þýðingu og leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Þann 25. nóvember verður svo Litla hryllingsbúðin frumsýnd og þann 1. desember Karíus og Baktus en Guðjón leiktýrir þessum sýningum einnig. Leikendur í Kvöldhúmi eru tveir en hinar sýningarnar eru mun fjölmennari, sérstaklega Litla hryllingsbúðin. Þar nýtur Grímnir hæfileikafólks í Hólminum, ekki aðeins á leiksviðinu, heldur einnig í söng og tónlist. Þá má geta þess að í Karíus og Baktus eru tvö gengi í aðalhlutverkunum, enda...

Sjá meira

Mojito sýnt í Tjarnarbíói

Um sl. helgi var Mojito, nýtt leikverk eftir Jón Atla Jónasson, frumsýnt í Tjarnarbíói í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni glænýtt, bráðfyndið og sjóðandi heitt leikverk úr íslenskum raunveruleika. Í verkinu er fjallað um gildismat síðustu ára, gildismat góðærisins og hvaða gjald það í raun og veru felur í sér fyrir þá sem aðhyllast það. Hér þarf að rifja upp veisluna og gera ákveðin reikningsskil. Og að sjálfsögðu er spurningin hvort ískaldur Mojito nægi til að kæla blóðið eitthvað niður. Tveir menn hittast fyrir tilviljun og annar þeirra fer að rifja upp heimsókn sína á indverks/pakistanskan veitingastað í...

Sjá meira

Stuttverk fyrir yngstu börnin hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Sunnudaginn 14. nóvember kl. 17 verður frumsýnd stuttverkadagskrá fyrir yngstu börnin hjá Leikfélagi Mosfellssveitar Sýningin kallast Ævintýri gerast enn og þar koma fram hinar ýmsu ævintýrapersónur eins og prinsessan á bauninni, geiturnar þrjár og leikhúsflugurnar Bía og Finnur. Aðeins verða sýndar þrjár sýningar, sunnudaginn 14. nóvember kl. 17, sunnudaginn 21. nóvember kl. 14 og sunnudaginn 5. desember kl. 14. Miðapantanir eru í síma 566 7788 og miðaverð er aðeins 500 krónur....

Sjá meira

Réttarhöldin eftir Franz Kafka leikgerð hjá Stúdentaleikhúsinu

Á laugardaginn kemur, 13. nóvember, mun Stúdentaleikhúsið frumsýna Réttarhöldin eftir Franz Kafka á Norðurpólnum, Sefgörðum 3, Seltjarnarnesi. Leikstjóri er Friðgeir Einarsson en hann skrifaði einnig leikgerð verksins. Skáldsagan Réttarhöldin heitir á frummálinu Der Prozess og er eins og áður segir eftir Franz Kafka  en hún var fyrst gefin út árið 1925 og er ein af þekktari sögum höfundarins. Sagan þótti skörp ádeila á skrifræði, spillingu og valdníðslu, en hún býður ekki síður upp á persónulega túlkun og þykir á köflum endurspegla sálarlíf höfundar. Með uppfærslu Stúdentaleikhússins á þessari tímalausu sögu rannsakar leikhópurinn hugtökin sekt og réttlæti. Stúdentaleikhúsið er öflugt...

Sjá meira

Æfingar hafnar á Helgi dauðans

Hjá leikfélaginu Hugleik standa nú yfir æfingar á leikritinu Helgi dauðans eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Leikstjórar sýningarinnar eru tveir, þeir Rúnar Lund og Sigurður H. Pálsson. Í leikhópnum eru ellefu manns, þar af þreyta sjö hér frumraun sína með Hugleik. Stefnt er að frumsýningu í janúarmánuði. Í verkinu eru raktir atburðir einnar helgar á heimili þriggja ungmenna, tvíburanna Birtings og Ninnu og vinkonu þeirra Dagnýjar. Ýmsir litríkir vinir þeirra líta við, svo og óboðnir gestir, þau Birtingur, Ninna og Dagný þurfa að takast á við óþægilegar uppákomur sem reyna á samband þeirra en stundum segja þau eitthvað fyndið. Þótt...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert