Tveir handritsstyrkir og þrír til leiksmiðjuverkefna
Gífurlegur fjöldi umsókna barst í Leikritunarsjóðinn Prologos að þessu sinni, en alls bárust 65 umsóknir frá 59 aðilum, og hafa umsóknir í sjóðinn aldrei verið fleiri. Nú er úthlutað úr sjóðnum í sjötta sinn, og hljóta tveir höfundar handritsstyrki og þrír aðilar styrki vegna leiksmiðjuverkefna. Leikritunarsjóðurinn Prologos, sem hefur starfað við Þjóðleikhúsið frá því í júní árið 2008, vinnur að því að efla íslenska leikritun og nýsköpun í sviðslistum með styrkveitingum til listamanna og öðrum verkefnum. Annað leikskáldanna sem hlaut styrk að þessu sinni, Sigurður Pálsson sem hlaut styrk til að skrifa leikritið Segulsvið, er eitt af okkar þekktustu og...
Sjá meira


