Author: lensherra

…Í leikhúsið skal arka – Leikhúsgaldur fyrir alla fjölskylduna

FreyvangsleikhúsiðSkilaboðaskjóðanHöfundur: Þorvaldur ÞorsteinssonLeikstjóri: Daníel Freyr Jónsson Freyvangsleikhúsið frumsýndi laugardaginn 6. október Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Daníels Freys Jónssonar. Höfundur tónlistar í verkinu er Jóhann G. Jóhannsson en um tónlistarstjórn sáu Sigríður Hulda Arnardóttir og Brynjólfur Brynjólfsson. Júlíus Júlíusson brá sér á sýninguna í Freyvangi og setti saman pistil um upplifunina.   Að mínu mati er eitt af hlutverkum áhugaleikhússins að gefa fólki kost á að taka þátt í gefandi félagsstarfi. Hlutverkin í leikhúsinu eru fjölbreytt hvort sem að þú vilt láta ljós þitt skína á sviðinu eða baksviðs, allt saman skiptir þetta miklu máli til að góður...

Sjá meira

Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Tímaskekkju

Fyrsta kynning vetrarins í Nemendaleikhúsi LHÍ er verkefnið Tímaskekkja eftir nemendur á 3 ári í leikaranámi. Verkefnið er hugleiðing um samskipti og sambönd kynjanna og hafa nemendur unnið að því síðustu sex vikur. Áhersla námskeiðsins hefur verði á vinnu með ólíkar samsetningar og sköpunar aðferðir við gerð leiksýninga, á ferli slíkrar vinnu og síðan vinnu við samsetningu og úrvinnslu efnis. Frumsýnt er föstudaginn 12. október kl. 20:00, sýnt er í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13, gengið inn að aftan. Næstu sýningar:Sunnudaginn 14. októberMánudaginn 15. októberÞriðjudaginn 16. októberMiðvikudaginn 17. októberFimmtudaginn 18. október. Það er ókeypis á allar sýningar Nemendaleikhússins en það þarf...

Sjá meira

Ljósvíkingur í Norðurpólnum

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði, í samvinnu við Norðurpólinn, sýnir Ljósvíkingur – Skáldið á Þröm, einlægan og átakanlegan einleik um skáldið Magnús Hj. Magnússon í Norðurpólnum, Seltjarnarnesi. Einleikurinn var sýndur vestur á fjörðum í vor og sumar við gríðarlega góðar undirtektir. Það er Ársæll Níelsson sem túlkar skáldið og Elfar Logi Hannesson leikstýrir. Alþýðuskáldið Magnús Hj. Magnússon lifði engu venjulegu lífi og sjaldan var það neitt dans á rósum. Hann ritaði dagbækur frá unga aldri þar sem hann greinir nákvæmlega frá sorg og gleði í sínu lífi sem og grenir frá ýmsum viðburðum úr daglega lífinu. Strax í æsku urðu foreldrar...

Sjá meira

Gói og baunagrasið snýr aftur á Litla sviðið

Gói og baunagrasið – snýr aftur á Litla sviðið á sunnudaginn 7. október í takmarkaðan tíma. Hér eru á ferðinni lifandiog bráðskemmtilegar barnasýningar með Góa og Þresti Leó sem leiða börnin inn í heim ævintýranna. Sýningarnar Eldfærin og Gói og Baunagrasið eru uppfullar af leikhústöfrum, kímni og fjörugri tónlist sem fallið hefur svo sannarlega í kramið hjá ungum sem öldnum leikhúsunnendum. Ævintýrið um Eldfærin eftir H.C. Andersen var frumsýnt vorið 2011. Dátinn er á leið heim úr stríði og upp spinnst spennandi ævintýri þar sem nornin, prinsessan og allir þorpsbúar birtast ljóslifandi að ógleymdum hundunum þremur með ógnarstóru augun....

Sjá meira

Velheppnað námskeið í Mosfellsbæ

Laugardaginn 29. september stóð Bandalag íslenskra leikfélaga fyrir námskeiði í stjórnun áhugaleikfélaga í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Alls sóttu 26 manns frá 13 leikfélögum námskeiðið sem tókst í alla staði hið besta. Fyrirlesarar komu úr röðum stjórnar og starfsmanna Bandalagsins auk þess sem Kristín Elfa Ragnarsdóttir frá auglýsingastofunni TBWA/Pipar kynnti möguleika í markaðssetnignu með samfélagsmiðlum. Farið var yfir eftirtalda þætti í stjórnun leikfélaga: * Verkaskipting stjórna, Skipurit, Hlutverk hvers stjórnarmanns – Guðfinna Gunnarsdóttir* Lög leikfélaga – Þorgeir Tryggvason* Fjármál; bókhald og styrkumsóknir – Vilborg Valgarðsdóttir                 * Markaðssetning, notkun samfélagsmiðla – Kristín Elfa Ragnarsdóttir* Leiklistarvefurinn – Ármann Guðmundsson*...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert