Hugleikur heldur leiklistarnámskeið
Nú stendur yfir skráning á námskeið fyrir leikara sem haldið verður í æfingahúsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Um er að ræða 18 tíma námskeið sem haldið verður dagana 3.-12. nóvember en leiðbeinandi er Þór Tulinius, 53 ára leikari og leikstjóri. Farið verður í leiki og spuna. Spáð í stærð á sviði og persónusköpun. Er leiklist bara tækni eða er einhver heilagleiki sem fylgir því að íklæðast hlutverki? En fyrst og fremst verður lagt upp úr því að hafa bara gaman af þessu! Kennslan fer fram sem hér segir: Laugardaginn 3. nóvember kl. 12:30-16:30Fimmtudaginn 8. nóvember kl. 19:30-22:30Laugardaginn 10. nóvember kl. 14:00-18:00Sunnudaginn...
Sjá meira


