Author: lensherra

Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir á Ísafirði

Litli leikklúbburinn á Ísafirði frumsýnir fjölskyldu leikritið Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir eftir Ólaf Hauk Símonarson í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, laugardaginn 6. október kl 15. Leikritið er byggt á sögu Rudiard Kipling, tónlist og texta semur Ólafur Haukur og er þessi uppfærsla í leikstjórn Halldóru Björnsdóttur. Leikritið er fjölskylduleikrit og margar persónur fylla það lífi svo sem kötturinn sem er leikinn af Sigríði Salvarsdóttur. Frumsýning eins og áður segir er laugardagurinn 6. október. Næstu sýningar eru: Sunnudagurinn 7. október kl. 15 Þriðjudagurinn 9. október kl. 20 Fimmtudagurinn 11. október kl. 20 Miðaverði er stillt í hóf; Frítt fyrir...

Sjá meira

Ævintýri Múnkhásens aftur á fjalirnar

Þann 7. október hefjast að nýju sýningar á Ævintýrum Múnkhásens í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýnenda og frábærar viðtökur hjá áhorfendum síðastliðinn vetur. Sævar Sigurgeirsson skrifar handritið og Ágústa Skúladóttir leikstýrir en Ágústa frumsýndi í byrjun september nýja uppfærslu af Dýrunum í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu. Tónlistina semja Ármann Guðmundsson, Eggert Hilmarsson og Þorgeir Tryggvason meðlimir í Ljótu hálfvitunum. Ævintýri Múnkhásens er lygileg sýning fyrir alla aldurshópa, full af ólíkindum, glensi og leikhústöfrum sem fá fólk til að vantreysta eigin augum. Ævintýri Múnkhásens er alveg lygilega skemmtileg fjölskyldusýning fyrir alla frá 5 ára aldri um hin ótrúlega lygalaup Múnkhásen,...

Sjá meira

Unglingastarf Leikfélags Kópavogs að hefjast

Nú líður að því að starf unglingadeildarinnar hefjist af fullum þunga. Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Adda Rut, hefur verið ráðin til að leiðbeina krökkunum. Adda Rut er þaulreynd í leiklistastarfi með börnum og unglingum, m.a. hefur hús starfað hjá Leynileikhúsinu, ÍTR, skólum Hjallastefnunnar og fleirum. Kynningarfundur er boðaður í kvöld 1. október  kl. 17. Vinnan byrjar svo í annarri viku október og er gert ráð fyrir að hópurinn hittist þrisvar sinnum í viku. Ekki er búið að negla niður viðfangsefni en stefnt er að frumsýningu um miðjan nóvember. Leikfélag Kópavogs hefur haldið úti Unglingadeild í mörg ár og er aldurinn...

Sjá meira

Sköllótta söngkonan í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir þann 29. september hinn óviðjafnanlega, fyndna, skrítna og brjálæðislega gamanleik rúmenska/franska leikskáldsins, Eugene Ionesco, Sköllóttu Söngkonuna í Gaflaraleikhúsinu. Frá því að verkið var fyrst frumsýnt í London fyrir 50 árum hefur það farið sigurför um heiminn og komið ólíklegasta fólki til að hlæja. Leikstjórar verksins eru Halldór Magnússon og Gísli Björn Heimisson. Miðapantanir eru í síma 565 5900 og á midasala@gaflaraleikhusid.is. Miðasalan er opin frá 15.00-18.00 alla virka daga og tveimur tímum fyrir...

Sjá meira

Námskeið í gerð kvikmyndahandrita

Í október stendur Endurmenntun HÍ fyrir námskeiði í gerð kvikmyndahandrita. Þar er nemendum kennt að vinna hugmyndir sínar og þróa þær í áttina að kvikmyndahandriti með sérstaka áherslu á dramatíska uppbyggingu. Námskeiðið, sem hefur hlotið mikið lof fyrri þátttakenda, er ætlað bæði þeim sem hafa reynslu af kvikmyndagerð og þeim sem eru reynslulausir á því sviði. Kennarar eru Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, BA í almennri bókmenntafræði frá HÍ og MFA í handritsgerð og kvikmyndaleikstjórn frá Columbia University og Árni Ólafur Ásgeirsson, MA í kvikmyndaleikstjórn frá Polish National Film School. – Þú lærir að beita helstu tólum og tækjum í handritsgerð...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert