Author: lensherra

Ef ég væri jólasveinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikritið Ef ég væri jólasveinn, sannkallað jólaævintýri fyrir börn á öllum aldri, þann 25. nóvember nk. Sveinn J. Ólason er ungur drengur í Giljaskóla og á þann draum heitastan að vera jólasveinn.  Getur verið að ósk hans rætist? Sýnt verður í Samkomuhúsinu á sunnudögum til 9. desember. Næstu sýningar: sunnudaginn 25. nóvember kl. 14:00 og 16:00sunnudaginn 2. desember kl. 14:00 og 16:00sunnudaginn 9. desember kl. 14:00 og 16:00 Miðasala á midi.isMiðaverð 1.500.- Leikarar: Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Skúli Gautason Leikstjórn: Sigríður Eir Zophaníasdóttir Leikmynd, lýsing og hreyfimyndir: Egill Ingibergsson Búningar: Helga Mjöll...

Sjá meira

Ekkert venjulegt brúðkaup

Leikdeild Umf. ÍslendingsSmáborgarabrúðkaupeftir Bertold Brechtþýðing Þorsteinn Þorsteinssonleikstjórn Ingrid Jónsdóttir Það er brúðkaupsveisla og þar eru glæsileg brúðhjón ásamt fjölskyldu sinni og vinum sem eru komnir til að skála fyrir þeirra björtu framtíð. Veisluborðið er þrungið mat og víni, það er ljósadýrð og prúðbúnir gestirnir ganga um og spjalla um hvað þetta sé nú allt efnilegt og flott.  Á meðan gerir faðir brúðarinnar tilraunir til að segja gamansögur. Þannig byrjar leikrit Bertolts Brechts (1898-1956), Smáborgarabrúðkaup, sem frumsýnt var af Ungmennafélaginu Íslendingi í Félagsheimilinu Brún föstudaginn 9. nóvember sl. Verkið er í íslenskri þýðingu Þorsteins Þorsteinssonar. Þetta er æskuverk Brechts, samið...

Sjá meira

Macbeth í Þjóðleikhúsinu, miðasala hafin

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í ár er Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins margverðlaunaða leikstjóra Benedicts Andrews. Miðasala er hafin en sýningatímabilið verður óvenju stutt, einungis verður sýnt út janúar. Margir bíða jólafrumsýningar Þjóðleikhússins með eftirvæntingu og sýningin á Macbeth verður sannkölluð hátíðarsýning. Einn af eftirsóttari leikstjórum samtímans leikstýrir Birni Thors í hlutverki Macbeths og Margréti Vilhjálmsdóttur í hlutverki lafðinnar í þessu blóðuga verki. Að vanda er jólafrumsýning Þjóðleikhússins á annan dag jóla. Aðalæfing á verkinu verður kl. 14:00 á Þorláksmessu. Hún er öllum opin og verður miðaverð aðeins 2.000 krónur. Um verkið: Hið kynngimagnaða og blóðuga verk skáldjöfursins mikla, um...

Sjá meira

Ekki alveg barn og ekki alveg fullorðinn

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir frumsamið leikverk er nefnist Milli tveggja heima, fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20.00. Milli barnæsku og fullorðinsára er undarlegur heimur unglingsáranna. Spennandi og ógnvænlegur í senn, og ekki alltaf blíður þeim sem hann gista.„Hvernig er að vera ung manneskja í samfélagi okkar nútildags?“ Þannig spurðu krakkarrnir í unglingadeild Leikfélags Kópavogs sjálf sig í haust og lögðu strax af stað í leit að svari.  Út frá því spunnust umræður, sögur, frásagnir, litlar senur og stórar, spunatilraunir, tilfinningar, tónlist, andrúmsloft, ádeila og ýkjur. Næstum óteljandi hugmyndir. Milli tveggja heima er svarið við stóru spurningunni sem lagt var upp með...

Sjá meira

Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Hamagang í helli mínum

Sunnudaginn 18. nóvember var leikritið Hamagangur í helli mínum frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þetta er nýtt íslenskt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Maríu Guðmundsdóttur. Leikstjórar eru Ólöf Þórðardóttir og Eva Björg Harðardóttir. Um tuttugu manns koma að sýningunni sem er full af söng, glensi og gríni. Sýningar verða í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ á sunnudögum kl. 16. Í leikritinu taka Grýla og Leppalúði að sér að sjá um að reka hótel í Mosfellsbæ á aðventunni og skilja jólasveinana eina eftir í hellinum á meðan. Þeir fá það hlutverk að ganga frá og pakka inn jólagjöfum til allra barnanna á íslandi. Það...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert