Macbeth í Þjóðleikhúsinu, miðasala hafin
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í ár er Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins margverðlaunaða leikstjóra Benedicts Andrews. Miðasala er hafin en sýningatímabilið verður óvenju stutt, einungis verður sýnt út janúar. Margir bíða jólafrumsýningar Þjóðleikhússins með eftirvæntingu og sýningin á Macbeth verður sannkölluð hátíðarsýning. Einn af eftirsóttari leikstjórum samtímans leikstýrir Birni Thors í hlutverki Macbeths og Margréti Vilhjálmsdóttur í hlutverki lafðinnar í þessu blóðuga verki. Að vanda er jólafrumsýning Þjóðleikhússins á annan dag jóla. Aðalæfing á verkinu verður kl. 14:00 á Þorláksmessu. Hún er öllum opin og verður miðaverð aðeins 2.000 krónur. Um verkið: Hið kynngimagnaða og blóðuga verk skáldjöfursins mikla, um...
Sjá meira


