Enn er leitað að jólunum í Þjóðleikhúsinu
Áttundu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Undanfarin sjö ár hefur verið uppselt á allar sýningarnar og ef fer sem horfir verða 200 uppseldar sýningar á þessu skemmtilega aðventuævintýri komnar í hús fyrir jól. Það er því um að gera að bregðast skjótt við því að miðarnir renna út eins og heitt hangiket á jólum! Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og saman leiða þeir börnin með leik og söng um leikhúsið. Meðal viðkomustaða á ferðalagi þeirra eru...
Sjá meira


