Gull í tönn á Egilsstöðum
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir nýtt íslenskt leikrit í Valaskjálf laugardaginn 26. apríl. Um er er að ræða nýjasta verk Ásgeirs Hvítaskálds. Hann segir verkið hafa verið að gerjast til fjölda ára en hann fór þó ekki að skrifa það fyrr en hann flutti á Fljótsdalshérað. Gull í tönn segir frá gömlum hrossabónda sem hefur tilkynnt að hann ætli að deyja og það sé í rauninni góður dagur til þess í dag. Við þessar fréttir gerir fólk sér upp erindi við kallinn, því hann er með þeim ósköpum gerður að vera með gulltennur í munninum og allir vilja fá sinn hlut...
Sjá meira


