Hamlet litli í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 12. apríl kl. 14 frumsýnir Borgarleikhúsið verkið Hamlet litla á litla sviðinu þar sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir þeim Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Sigurði Þór Óskarssyni & tónlistarkonunni Kristjönu Stefánsdóttur. Leikhópurinn tekur þessa frægu harmsögu og gerir hana skiljanlega fyrir börn og fullorðna. Sýningin er tilvalin fyrir eldri en 11 ára aldur. Hvernig er að vera eða vera ekki Hamlet litli? Sagan – Þegar Hamlet litli missir föður sinn er hann harmi sleginn og fer að haga sér stórfurðulega. Ekki batnar það þegar mamma hans ætlar örfáum dögum eftir útförina að giftast bróður pabba hans – og bróðirinn hefur...
Sjá meira


