Author: lensherra

Rjúkandi ráð frumsýnt á Sauðárkróki

Í gærkvöldi, sunnudaginn 27. apríl, var leikritið Rjúkandi ráð frumsýnt hjá Leikfélagi Sauðárkróks. Verkið var áður sýnt á Sauðárkróki fyrir 27 árum, en Leikfélag Sauðárkróks sýndi fyrst verk eftir þá Jónas Árnason og Stefán Jónsson, með þekktum söngdönsum Jóns Múla Árnasonar árið 1969 og var það Allra meina bót. Næst var Delerium Búbónis sýnt árið 1983. Á árunum 1987-1990 sýndi félagið fjögur verk eftir þá bræður, Rjúkandi ráð, Okkar maður, Allra meina bót og Í sal hans hátignar, sem var samantekt í leikgerð Sigurgeirs Scheving og frumflutt af félaginu. Sigurgeir leikstýrði þessum fjórum uppsetningum. 24 árum seinna sýnir félagið...

Sjá meira

Lokað föstudaginn 25. apríl!

Við vekjum athygli á að verslun og skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga verða lokuð föstudaginn 25. apríl (og að sjálfsögðu líka á morgun, Sumardaginn fyrsta). Opnum eins og venjulega kl. 9.00 mánudaginn 28. apríl. Við óskum aðildarfélögum Bandalagsins og öllum okkar góðu viðskiptavinum Gleðilegs sumars og þökkum fyrir veturinn!...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Augnskuggapalettur frá Kryolan. Litabox á tveimur hæðum, samtals 20 litir, 10 mattir og 10 glimmer. Fallegir og endingargóðir litir, kremkennt pressað púður sem berist þurrt á augnalokið. Sumir litanna í boxinu hennta einnig vel sem kinnalitir. Boxið kostar 17.500 kr. Einnig eru við með þrjá staka liti, hvítan, svartan og gulan í 2,5 gr. dósum á 1.300. kr. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Litirnir nást af með augnhreinsivökva eða kremi. Innihald, athugið...

Sjá meira

Sitji guðs englar slær í gegn á Húsavík

Sýningar standa nú  yfir hjá Leikfélagi Húsavíkur á leikritinu Sitji guðs englar. Þetta er leikgerð Illuga Jökulssonar upp úr þrem bókum Guðrúnar Helgadóttur; Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikstjórar eru Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar 17 sem sýndar hafa verið. Sýnt verður fram til 1. maí en þá verður englum pakkað niður til hvíldar.     Sitji guðs englar fjallar um fátæka og barnmarga fjölskyldu í íslensku sjávarþorpi á hernámsárunum og við sjáum lífið á þessum árum gegnum augu barnanna. Hinar og þessar uppákomur verða í lífi...

Sjá meira

Revíukvöld á Melum

Föstudagskvöldið 25. apríl kl. 20:30 ætlar Leikfélag Hörgdæla, í samvinnu við Sögufélag Hörgársveitar, að sýna upptöku af revíunni Klúður & klaufaskapur frá árinu 1987 á Melum. Hvað gerðist í sveitinni á níunda áratug síðustu aldar? Manstu eftir J-listanum eða fiskeldinu? Gómsætt kleinukaffi innifalið í miðaverði (500 kr.) og verzlunarstjórinn mætir á svæðið með sinn hefðbundna og létta varning. Vinsamlegast látið berast til vina og ættingja utan...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert