Upp, upp – Æskusaga Hallgríms Péturssonar
Stoppleikhópurinn sýnir leikritið „Upp, upp“ Æskusögu Hallgríms Péturssonar eftir Valgeir Skagfjörð í Gerðubergi miðvikudaginn 6. maí kl. 19.00. Aðeins þessi eina sýning og ókeypis inn! Leikritið segir frá uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins. Verkið byggir að stærstum hluta á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum fremur hefur gert Hallgrími Péturssyni og konu hans Guðríði Símonardóttur skil í verkum sínum. Verkið er sniðið að ungum áhorfendum og miðar að því að gefa grunnskólabörnum/unglingum innsýn í lífsbaráttu Íslendinga á 17. öld og hvaða merkingu það hafði fyrir ungan dreng eins og...
Sjá meira


