Dansveisla í Reykjavík og á Akureyri
Í komandi viku býður Íslendinga sannkölluð dansveisla þegar tveir erlendir danshópar mæta á klakann með stórfenglegar sýningar. Þetta er annars vegar pólski danshópurinn Polish Dance Theatre og hins vegar norskur danshópur sem kennir sig við stofnanda hans, Jo Strømgren Kompani. Koma danshópanna til landsins tengist samstarfi sem hóparnir tveir eiga við Sjálfstæðu leikhúsin og verður sýnt á þremur stöðum á landinu. Borgarleikhúsið tekur á móti Polish Dance Theatre 18. og 19. maí. Þar verður flutt sýningin Czterdzieści eða fjörutíu. Sýningin fylgist með lífi konu frá því augnabliki sem hún fæðist árið 1973 og allt til afmælis hennar árið 2013....
Sjá meira


