Author: lensherra

Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Laugardaginn 29. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hagnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Síðasta sýning heppnaðist glimrandi vel og og voru sjö verk sýnd á föstudaginn var. Að þessu sinni verða 8 verk tekin til sýninga og því 15 ný íslensk verk sem félagið býður upp á að þessu sinni. Hið vikulega þessa vikuna hefur þemað Vitund – Awareness. Þetta er fullorðins sýning þ.a. hún er bönnuð börnum. Verkin sem sýnd verða eru: Puntudagur, höfundur: Elín Eiríksdóttir Grænland, höfundur: Ólafur Þórðarson Heilög Jól, höfundur: Ingveldur Lára Þórðardóttir Hildur, höfundur: Steinunn Þorsteinsdóttir Kramdar dósir, höfundur: Sóley Ómarsdóttir Smiðsraunir, höfundur:...

Sjá meira

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Líkt og undanfarin ár stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6. og 7. bekk) og hinsvegar fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára (8. bekk og eldri). Þau hefjast 8. sept. og standa til loka nóvember. Námskeið verða vikulega á þriðjudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp en kl. 17.15-19.15 hjá eldri hópi. Námskeiðin munu standa í 11 vikur til og með 17. nóvember. Í lok námskeiðs mun eldri hópur æfa upp og sýna stutt frumsamið leikrit og er gert ráð fyrir um tveggja vikna vinnu eftir námskeiðið í það. Leiðbeinendur...

Sjá meira

Námskeið í leikritun hjá Karli Ágústi Úlfssyni

Leikfélagið Hugleikur stendur fyrir námskeiði í leikritun nú í byrjun september í húsnæði sínu að Eyjarslóð 9. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Námskeiðið er ætlað öllum sem áhuga hafa á að spreyta sig við leiktextasmíð, jafnt algerum byrjendum og þeim sem einhverja reynslu hafa. Í gegnum nokkrar æfingar skoðum við grunneiningar leikritsins – upphaf, miðju og endi, kynnum okkur persónusköpun, söguþráð og samtöl. Unnið verður með stutt verk, sem þó uppfylla öll skilyrði leiksögunnar, og stefnt er að því að lokaverkefni hvers nemanda verði tilbúið til meðhöndlunar leikara og leikstjóra. Kennt verður í fjórum hollum: 2. september 18.00-22.00 5....

Sjá meira

Nýtt leikár kynnt í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið kynnir leikárið 2015-2016 með glæsilegu blaði sem kom út í dag. Dagskrá vetrarins eru mjög fjölbreytt og er öllu tjaldað til. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum og er meiri en nokkru sinni fyrr í sögu íslensks leikhúss. Fjöldi kortagesta hefur margfaldast og hafa þeir aldrei verið fleiri. Úr ávarpi Kristínar Eysteinsdóttur leikhússtjóra: Á stóra sviðinu í vetur bjóðum við upp á stórsýningar þar sem öllu verður tjaldað til. Leikstýran Yana Ross, sem hefur sópað að sér verðlaunum víðsvegar um Evrópu undanfarin ár, sviðsetur krassandi útgáfu af meistaraverkinu Mávinum og Þorleifur Örn Arnarson...

Sjá meira

Hið vikulega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Nú á föstudaginn 21. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega frumsýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Að þessu sinni verða sjö verk tekin til sýningar eftir jafn marga höfunda. Þema vikunnar að þessu sinni var Fíflið – The Fool og munu því öll verkin að þessu sinni fjalla að einhverju leyti um fíflið í einni eða annari mynd. Verkin sem sýnd verða eru: Af hverju kom Jesús til jarðar Jóki Froskar, mýs og mögulega Dvergar Fool me once Fíflin Bónus Smiðsraunir Í framhaldinu verður farið í aðra umferð á hinu vikulega sem sýnt verður 29. ágúst en það verður einungis...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert