Móðurharðindin, frumsýning í Þjóðleikhúsinu
Móðurharðindin eftir Björn Hlyn Haraldsson verður frumsýnt í Kassanum 5. september. Þetta er annað leikrit Björns Hlyns en verk hans Dubbeldusch var frumsýnt við góðan orðstýr á leikfélagi Akureyrar fyrir nokkrum árum. Björn Hlynur er einn af okkar fremstu kvikmynda- og sviðsleikurum og er einn af stofnmeðlimum leikhópsins Vesturports. Á þessu leikári mun Björn Hlynur leika í Heimkomunni eftir Harold Pinter í Þjóðleikhúsinu. Móðurharðindin fjalla um móður sem stöðugt fer sínu fram og börnin sem þurfa að taka afleiðingunum. Nema nú er mælirinn fullur! Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna, þar sem kynhlutverkin eru stokkuð...
Sjá meira


