Ævintýraóperan Baldursbrá í Hörpu
Ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson verður frumflutt á sviði í Norðurljósasal í Hörpu laugardaginn 29. ágúst 2015 og er miðasala hafin Hér er um tónleikauppfærslu að ræða. Tónlistin byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjörlegum dönsum. Söngvarar eru Fjóla Nikulásardóttir sópran í hlutverki Baldursbrár, Eyjólfur Eyjólfsson tenór syngur Spóa, Jón Svavar Jósefsson baritón er Rebbi, Davíð Ólafsson bassi syngur Hrútinn og níu börn eru í hlutverki yrðlinganna. 18 manna kammersveit leikur en stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson. Óperan segir frá Baldursbrá sem kynnist sposkum Spóa. Þau...
Sjá meira


