Extravaganza í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 28. október kl. 20:00 frumsýna Borgarleikhúsið og Leikhópurinn Soðið svið verkið Extravaganza á Nýja sviðinu. Um er að ræða nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur og leikstjóri er Ragnheiður Skúladóttir. Lýdía býr í fyrrum félagsblokk í úthverfi Reykjavíkur sem breytt hefur verið í gistirými fyrir ferðamenn. Gegn því að tékka ferðamenn inn og út úr blokkinni og afgreiða í lundabúðinni sem rekin er í sameigninni leyfir fasteignafélagið Porcellus henni að búa þar áfram. Án vitundar Porcellus hefur áhugasagnfræðingurinn Guðbrandur Númi hreiðrað um sig í geymslurými en fer um borgina að næturlagi í leit að pússlum í borgarsöguna. Þegar Porcellus tekur að...
Sjá meira


