Author: lensherra

Leitin að sumrinu hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs frumsýnir á laugardaginn barnaleikritið Leitin að sumrinu, sem samið er, leikstýrt og leikið af þeim félögum Ástþóri Ágústssyni, Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni og Magnúsi Guðmyndssyni. Hér er á ferðinni fjörug, fræðandi og skemmtileg leiksýning sem er sérstaklega ætluð yngstu áhorfendunum – og þeim sem eru ungir í anda. Leikritið er sýnt í Leikhúsinu, Funalind 2, húsnæði Leikfélags Kópavogs. Verkið fjallar um hann Jón sem þekkir ekki annað en eilíft sumar. Dag einn fara skrýtnar persónur að ryðjast inn í líf hans, hver á fætur annarri og skipta um árstíðir. Jón er í fyrstu alls ekki sáttur við þessar...

Sjá meira

Hannes og Smári í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 7. október kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Hannes og Smára á litla sviðinu. Verkið er eftir Halldóru Geirharðsdóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Jón Pál Eyjólfsson. Jón Páll leikstýrir og Brynja Björnsdóttir gerir leikmynd og búninga. Hannes og Smári, „annað sjálf“ okkar kraftmiklu leikkvenna Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, í hárbeittum nýjum gamanleik.  Félagarnir landsfrægu Hannes og Smári koma hér saman í hljómsveit sinni Úlfunum og lofa „eldfjörugri kvöldstund með leiklist, ljóðum, bardagalist og frumsaminni, óútgefinni tónlist.“ Að eigin sögn munu félagarnir fara með áhorfendur í „listrænan rússíbana, segja sögur um uppruna sinn, líf og áhrifavalda – þetta eru...

Sjá meira

Hugarflug hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss tekst á Hugarflug sunnudaginn 2. október kl. 14:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Þér og öllum vinum þínum er boðið. Hugarflug er fyrst og fremst tilraunverkefni þar sem félagsmönnum leikfélagsins jafnt sem öðrum eru gefnar nokkuð frjálsar hendur til að setja upp stutt verk, flytja tónlist, ljóð eða annað í svipuðum dúr. Þar koma saman reynsluboltar sem og ungir og óslípaðir demantar sem eiga framtíðina fyrir sér. Margir félagar í leikfélaginu hafa stigið sín fyrstu spor í Hugarflugi. Úr verður ca. klst löng dagskrá með fjölbreyttri og góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Að þessu sinni bíður Hugarflugði...

Sjá meira

ENGI – Töfrandi brúðusýning

Sunnudaginn 2. október kl. 15:00 verður brúðuleikritið ENGI sýnt í Tjarnarbíói.  Handbendi – Brúðuleikhús, atvinnuleikhús norðurlands vestra, kynnir Engi, frumsamið brúðuverk fyrir börn 3+, skapað af Gretu Clough. Sýningin var frumflutt í London síðasta sumar, og hefur verið sýnd um allt England síðan. Engi verður aðeins sýnt nokkrum sinnum á Íslandi og aðeins einu sinni í Tjarnarbíói. Tíminn breytir öllu. Í mannlausri framtíð er það bara grasið sem man hvernig hlutirnir voru. Komdu að hitta dýrin og skordýrin sem bjuggu á enginu og sjáðu sögur þeirra vakna til lífsins. Brúðuleikhúsið Handbendi endurvekur brúðuleiksýningu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Sagan er...

Sjá meira

Ársrit 2015–16 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2015–2016 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með því að senda póst á info@leiklist.is. Útprentað og gormað kostar ritið 4.000 kr. Pantanir þurfa að hafa borist fyrir 15. október...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert