Author: lensherra

Brot úr hjónabandi í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 4. nóvember kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á litla sviðinu Brot úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman. Ólafur Egill Egilsson leikstýrir þeim Unni Ösp Stefánsdóttur og Birni Thors. Barði Jóhannsson semur nýja tónlist við verkið. Uppselt er nú þegar á 17 sýningar og ekki verður hægt að bæta við aukasýningum. Jóhann og Maríanna hafa verið gift í tíu ár. Þeim gengur vel, hafa náð langt í starfi, eiga tvö börn og hjónaband þeirra virðist endalaus hamingja. Þangað til Jóhann tilkynnir Maríönnu að hann vilji skilja. Við tekur hressandi kvöldstund þar sem allt er gert upp: Hjónabandið, sambandið, vináttan, kynlífið, draumarnir,...

Sjá meira

Halaleikhópurinn frumsýnir Farið

Halaleikhópurinn hefur unnið hörðum höndum síðustu vikur við að setja upp nýtt íslenskt leikverk, Farið eftir Ingunni Láru Kristjánsdóttur í leikstjórn Margrétar Guttormsdóttur. Frumsýnt verður fös. 4. nóv. kl. 20.00. Verkið var sérstaklega samið fyrir leikhópinn í kjölfar samtals milli höfundar og félaga og byggir það á reynslu og skoðunum þeirra. Farið er pólitískt leikrit sem gerist um borð í 100 hæða, steinsteyptu geimskipi á ferð um geiminn. Farþegar eiga þar í samskiptum við kerfið um borð og mæta örlögum sínum þegar þeir rekast í horn og passa ekki inn í réttu rammana. Áhorfendur mega búast við sótsvartri háðsádeilu á...

Sjá meira

Elska – ástarsögur Norðlendinga

Skemmtilegt heimildarverk sem vermir manni um hjartarætur. Frumsýnt 11. nóvember í Hofi á Akureyri. Ástarsögur dynja á okkur – endalaust; ýmist óendurgoldnar ástir eða skammlífar. Flestar eiga þær það sameiginlegt að enda ekki vel. En hvað með sögurnar sem enda vel, eða ganga vel? Hvernig eru þær sögur og hvar er þær að finna? Leikhópurinn Artik hefur í sumar og haust safnað saman raunverulegum ástarsögum para víða af norðausturland og unnið úr þeim leikverkið Elsku – Ástarsögur Norðlendinga. Handritið er unnið orðrétt upp úr viðtölum sem tekin voru við pörin og einnig er tónlist nýtt til að teikna sögurnar upp....

Sjá meira

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Þriðjudaginn 1. nóvember kl 13 verður opinn samlestur á verkinu Ræman eftir Annie Baker. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.  Allir velkomnir og heitt kaffi á könnunni. Þrír starfsmenn í gömlu „költ“-bíói sópa gólfin, selja miða og...

Sjá meira

Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói

Pörupiltar frumsýna Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói föstudaginn 4. nóvember. Einlæg og opin sýning þar sem flókin tilfinningasambönd karlmanna eru afhjúpuð.  Og svo fer allt í fokk .. Sýning fyrir allar konur sem vilja skilja karlmenn.. eða skilja við karlmenn. Eftir að hafa sýnt Kynfræðslu Pörupilta í fjögur ár í Borgarleikhúsinu eru strákarnir mættir í Tjarnarbíó með dúndur uppistand um föðurhlutverkið, barnauppeldi og hjónaskilnað. Þeir fræða, ræða og svara þeim fjöldamörgu spurningum sem brenna á foreldrum, stjúpforeldrum, helgarmömmum og helgarpöbbum. Hver er munurinn á viku og viku og langri helgi? Hvernig virkar tinder? Hvernig er best að ala upp...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert