Author: lensherra

Uppistand í Tjarnarbíói

Sýningin „Ha ha voða fyndið“ sló í gegn í sumar og færri komust að en vildu. Nú eru grínistarnir mættir aftur til þess að kæta landsmenn í skammdeginu með sjóðandi heitu spaugi.  Hugleikur Dagsson, Saga Garðars, Bylgja Babýlons, Andri Ívars, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Jóhannes Ingi eru tilbúin með sérsmíðað grín sem enginn má láta framhjá sér fara! Kynnarnir eru ekki af ófyndnari endanum en þau Margrét Erla Maack og Jóhann Alfreð munu leiða áhorfendur í gegnum kvöldið og það er aldrei að vita nema vel valdir leynigestir kíki í heimsókn. Sýningar fara fram í Tjarnarbíói 3. og 10. desember...

Sjá meira

Jólaflækja, frumsýning í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 26. nóvember kl 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið leikritið Jólaflækju á Litla sviðinu. Verkið er samið og leikstýrt af Bergi Þór Ingólfssyni sem einnig leikur í sýningunni.  Tónlist semur Garðar Borgþórsson. Einar er alltaf einn. Líka á jólunum. En Einari leiðist aldrei. Hann finnur alltaf upp á einhverju til að gera einveruna áhugaverða. Kryddstaukar verða hljóðfæri og baunadósir dansa. Hann er hinsvegar mikill klaufabárður. Honum er til dæmis lífsins ómögulegt að elda jólahangikjötið án þess að umturna íbúðinni eða skreyta jólatréð án þess að vefja ljósaseríunni utan um sjálfan sig og festa sig við tréð með hangikjötið fast í hárinu. En þótt enginn pakki sé undir trénu...

Sjá meira

Námskeið í heilgrímugerð

Heilgrímu námskeið Skýjasmiðjunnar verður haldið dagana 28. og 29. nóvember frá klukkan 19:00 – 23:00. Unnið með undirstöðuatriði heilgrímu leiks á sviði. Notast verður við neutral mask, character mask og svo verða heilgrímur Skýjasmiðjunnar einnig prófaðar í senuvinnu. Grímuleikur er frábær leið fyrir leikara til að kanna og þróa eigin líkamsbeitingu. Það eru mjög mörg afbrigði til af grímuleik og farið er yfir þau helstu og þær aðferðir sem liggja til grundvallar heilgrímuleik. Heilgríman er einkar skemmtilegt og krefjandi form að vinna með. Hún notar engin orð og þarf því að reiða sig að fullu á líkamstjáningu leikara og stemmningu...

Sjá meira

Farið í Halanum

Halaleikhópurinn: Farið e. Ingunni Láru Kristjánsdóttur Leikstjóri: Margret Guttormsdóttir Leikritið Farið er ísköld ádeila á bresti velferðarkerfisins. Hvernig hugmyndir yfirboðara geta stundum stangast á við eiginlegar þarfir mannfólks sem minna má sín. Farið er samið af Ingunni Láru Kristjánsdóttur og leikstýrt af Margreti Guttormsdóttur. Það er sett upp af Halaleikhópnum og sýnt í Halanum, sem er staðsettur í Hátúni 12. Þetta er frumflutningur á verkinu og er þessi ritdómur um frumsýninguna. Verkið gerist í geimfari. Nánar tiltekið er þetta stór steypuklumpur á mörgum hæðum, þar sem farþegum er falið það verk að komast upp á efstu hæð. Hversu hátt, eða...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert