Author: lensherra

Jólasýning Svansins í Tjarnarbíói

Tveimur dögum fyrir jól ætlar spunahópurinn Svanurinn að halda jólasýningu. Það verður spuni og alls konar grín sem er sérstaklega hannað til þess að gleyma jólastressinu og leiða hugann að hinum sanna anda jólanna. Svanurinn er spunahópur sem var stofnaður fyrir þremur árum og samanstendur af sjö metnaðarfullum spunaleikurum úr röðum Improv Ísland. Meðlimir Svansins hafa leikið fjöldann allan af spunasýningum, jafnt sem hópur og sem meðlimir í sýningarhóp Improv Ísland. Þetta er annað árið í röð sem Svanurinn stendur fyrir jólasýningu. Í fyrra voru þeir félagar með litla sýningu á Bar 11, en í ár verður öllu tjaldað...

Sjá meira

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna sem slegið hefur í gegn tíu ár í röð. Aðeins örfá sæti laus! Næstu sýningar: sun – 11.des kl. 13:00 & 15:00 sun – 18.des kl. 13:00 & 15.00 Ævintýrið um Augastein byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri leikhópsins er það drengurinn Augasteinn sem allt snýst um. Hann lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna hrekkjóttu, sem vilja ólmir taka hann að sér, en þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist hans æsist leikurinn. Ná jólasveinarnir að bjarga Augasteini úr klóm Grýlu og...

Sjá meira

Naktir í náttúrinni

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni „Full monty“.  Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem myndin sem fylgir fréttinni  sýnir.  Leikarar eru 18 og þar á meðal nokkrir sem ekki hafa leikið með Leikfélagi Hveragerðis áður.  Stefnt er á frumsýningu þriðju helgina í janúar. Af þessu tilefni gefur Leikfélagið út dagatal með myndum af leikurunum, mjög lítið klæddum. Félagar...

Sjá meira

Opnunartími í desember

Lokað mánudaginn 12. desember og svo yfir hátíðirnar frá 22. desember til 2. janúar að báðum dögum meðtöldum. Leikhúsbúðin Vefverslun Bandalag íslenskra leikfélaga,...

Sjá meira

Þú kemst þinn veg í Tjarnarbíói

Iðnaðarmannaleikhúsið auglýsir: Okkur langar að beina athygli ykkar að einstökum viðburði sem vert er að gefa gaum. Nú í byrjun desember kemur út bókin Glímt við geðklofa og sem byggir á sama efni og einleikurinn Þú kemst þinn veg sem sýndur hefur verið af og til síðan 2014.  Í tilefni þess verða tvær hátíðarsýningar á verkinu þann 1. og 4. desember kl. 20:30 í Tjarnarbíói. Umræður verða með höfundi verksins, höfundi bókarinnar og Garðari Sölva Helgasyni en bókin og verkið byggir á sögu hans í baráttunni við geðklofa. Áhorfendum gefst tækifæri að kaupa bókina Glímt við geðklofa á tilboðsverði um leið og þeir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert