Author: lensherra

Gauragangur í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar fimmtudagskvöldið 17. október. Ormur Óðinsson er 16 ára snillingur og töffari og rétt að klára grunnskólann. Vinir, hugsjónir, fjölskylda, skoðanir, ljóð, óvinir, skóli og ást flækjast saman í tvísýnu spili um hug hans og hjarta. Gauragangur er drepfyndin og háalvarleg þroskasaga einnar skemmtilegustu andhetju Íslands. Næstu sýningar eru föstudagskvöldið 18. október og laugardagskvöldið 19. október. Hægt er að panta miða í símum 6660180 og 6660170 milli 17 og 19 virka daga og 14-16 á laugardögum. Einnig er hægt að panta miða í gegnum netfangið leikfelaghorg@gmail.com. Sýnt...

Sjá meira

Blúndur og blásýra í Freyvangi

Blúndur og blásýra, gamanleikrit í leikstjórn Völu Fannell, verður frumsýnt hjá Freyvangsleikhúsinu föstudaginn 18. október. Verkið er svört kómedía eftir Joseph Kesselring og hefur það verið sýnt víða um land undanfarin ár. Systurnar Abby og Martha búa í ættarhúsinu ásamt bróðursyni sínum sem gengur ekki alveg heill til skógar. Þær hafa orð á sér fyrir að vera einstök gæðablóð sem vilja allt fyrir alla gera. Annar bróðursonur þeirra býr skammt frá og nýtur góðs af gestrisni systranna. Svarti sauðurinn í fjölskyldunni kemur heim með miður göfug áform og ýmis konar misskilningur kemur upp, því engan grunar að systurnar stundi...

Sjá meira

Einleikjabúðir Act alone í nóvember

Einleikjahátíðin Act alone í samstarfi við Blábankann á Þingeyri blæs til einstakra einleikjabúða á Þingeyri. Einleikjabúðirnar verða haldnar helgina 1. – 3. nóvember í Leiklistarmiðstöð Kómedíuleikhússins og Blábankanum á Þingeyri. Kennarar verða þeir Elfar Logi Hannesson, einleikari og stofnandi Act alone, og Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri. Skráning í einleikjabúðir Act alone er þegar hafin og gengur vel því nú eru aðeins 4 sæti laus. Einleikjabúðagaldið er sérlega einstakt aðeins 30.000.- krónur. Ekkert mál er að útvega gistingu á góðum prís á Þingeyri fyrir þá sem þess óska. Smiðjan er opin hvortveggja áhuga- sem atvinnufólki.Skráning í einleikjabúðirnar er með tölvupósti á...

Sjá meira

Sannleikur á sviði – leiklistarnámskeið

Sviðslistahópurinn Flækja stendur fyrir leiklistarnámskeiði fyrir byrjendur og lengra komna þar sem unnið er með leiktexta og helstu aðferðir við að læra og flytja hann á trúverðugan hátt. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem stefna á prufur bæði fyrir leiklistarskóla eða önnur verkefni. Markmið námskeiðisins er að læra einfalda tækni sem auðvelt er að tileinka sér og hjálpar manni að vera meira sannfærandi á sviði og fyrir framan myndavél. Námskeiðið er fyrir 16 ára og eldri. Námskeiðið fer fram 19. október, kl. 10:00- 15:00, í Söngskólanum í Reykjavík. Kennarar eru þær Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Júlíana Kristín Jónsdóttir. Nánari upplýsingar...

Sjá meira

Lína langsokkur á Sauðárkróki

Hið sívinsæla leikrit Lína langsokkur verður frumsýnt á Sauðárkróki um næstu helgi. Leikstjóri er Pétur Guðjónsson. Leikhópurinn telur 16 manns en alls taka um 35 þátt í uppsetningunni. Leikfélag Sauðárkróks hefur verið iðið við barnasýningakolann á undanförnum árum og setti m.a. upp Ævintýrabókina í fyrra. Þar áður hefur félagið sett upp Dýrin í Hálsaskógi, Emil í Kattholti og Kardemommubæinn svo eitthvað sé talið af uppsetningum fyrir börn. Æfingar á Línu hófust 30. ágúst síðastliðinn. Leikfélag Sauðárkróks setur upp tvær leiksýningar á ári og að jafnaði er sett upp barna- og fjölskylduleikrit á haustin en farsi, gaman- eða söngleikur að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert