Author: lensherra

Saumastofan á Hólmavík

Í lok nóvember frumsýnir Leikfélag Hólmavíkur Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson. Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hólmavík en Skúli Gautason sinnir leikstjórn. Sett hefur verið saman hljómsveit að þessu tilefni svo von er á mikilli gleði. Aldurssamsetning hópsins spannar í það minnsta 50 ár en samstaða er mikil og æfingar ganga vonum framar.Að venju stefnir Leikfélagið á leikferð að heimasýningum loknum svo það er um að gera að hafa samband ef áhugi er fyrir að því að hýsa skemmtilega leiksýningu í aðdraganda...

Sjá meira

Leiklestrar hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Í vetur verður Leikfélag Hafnafjarðar með verkefni sem gengur undir nafninu Leiklestrarkvöld LH. Stefnan er að leiklesa hin ýmsu verk t.d. verk sem eru á fjölum leikhúsanna, gamla klassík eða jafnvel ný verk.Fyrirkomulagið er þannig að þeir sem hafa áhuga á að taka þátt þurfa að tilkynna sig með a.m.k. viku fyrirvara. Útbúinn verður sérstakur viðburður fyrir hvert kvöld. Þeir sem melda sig fá sent handrit að leikverkinu sem flytja á sem og nafnið á þeim karakter sem þeir leiklesa. Ætlast er til að þátttakandi hafi rennt yfir textann í það minnsta einu sinni fyrir leiklesturinn. Val á verki...

Sjá meira

Leiksmiðja á Selfossi

Leikfélag Selfoss stendur fyrir leiksmiðju í aðdraganda uppsetningar leikárið 2019-2020. Að þessu sinni er það hinn margrómaði Rúnar Guðbrandsson sem mætir vaskur til leiks. Rúnar hefur komið áður við sögu Leikfélags Selfoss því árið 2017 leikstýrði hann Kirsuberjagarðinum eftir Chekov og árið 2012 Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Rúnar hefur sett upp fjölda sýninga hjá sjálfstæðum atvinnuleikhúsum og áhugaleikfélögum um land allt, auk þess kennir hann við Kvikmyndaskóla Íslands.Leiksmiðjan er opin öllum áhugasömum 16 ára og eldri, hvort sem áhuginn liggur á sviði leiklistar eða á bakvið tjöldin. Að vanda er tekið sérstaklega vel á móti nýju fólki sem hefur...

Sjá meira

Lína langsokkur í Eyjum

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir Línu Langsokk í kvöld, föstudaginn 18. október. Rauðhærða ofurkvendið Lína er sérlega vinsæl þetta misserið þar sem þetta er önnur sýningin af þremur sem fara á fjalirnar hjá leikfélögunum í haust. Ísey Heiðarsdóttir leikur óþekktarorminn hana Línu Langsokk. Hún segir að Lína sé draumahlutverkið hennar enda nokkuð lík Línu með rautt hár og stríðnispúkaglott. Ísey er með góðan fimleikagrunn sem kemur sér vel í þessu hlutverki þar sem hún skoppar og hoppar um sviðið í heljarstökkum og handahlaupum. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Uppselt er á fyrstu þrjár sýningar nú um helgina en lausir miðar eru...

Sjá meira

Rocky í Tjarnarbíói

Verðlaunasýningin ROCKY! í flutningi leikhópsins Óskabarna ógæfunnar verður sýnd á Íslandi í fyrsta skipti 18. október næstkomandi. Um er að ræða glænýtt danskt verk eftir einn mest spennandi leikhúsmann Danaveldis, Tue Biering. Verkið vakti mikla athygli á síðasta ári fyrir að taka á frumlegan hátt á erfiðu málefni. Við elskum öll söguna af Rocky, lúsernum sem nær með þrautseigju og vinnu að yfirstíga allar hindranir, bera andstæðinginn ofurliði og rísa upp sem sigurvegari í lokin. En hvað ef VIÐ erum andstæðingurinn? Hvað ef Rocky er einn af „hinum”? „Við verðum að útrýma þessum sjúkdómi sem herjar á landið okkar....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert