Þjóðsaga til næsta bæjar
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir föstudaginn 7. febrúar nk. nýtt íslenskt leikrit, sem fengið hefur nafnið Þjóðsaga til næsta bæjar. Leikritið er byggt á þjóðsögum Jóns Árnasonar en 200 ár voru liðin frá fæðingu hans sl. haust. Jón skráði og safnaði hundruðum íslenskra þjóðsagna, ævintýra og munnmælasagna um ævina. Sögum sem annars væru án efa flestar gleymdar og tröllum gefnar. Með sýningunni vill leikfélagið heiðra minningu Jóns. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er hinn góðkunni leikari Örn Árnason en hann hefur einnig samið söngtexta og flest lögin í sýningunni. Verkið er spunnið saman úr nokkrum þekktustu þjóðsögum og ævintýrum sem Jón hélt til...
Sjá meira


