Author: lensherra

Kleinur í Ölfusi

Leikfélag Ölfuss frumsýnir Kleinur eftir Þórunni Guðmundsdóttur þann 8. febrúar. Leikstjóri er Árný Leifsdóttir og með hlutverk fara þau Óttar Ingólfsson, Helena Helgadóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir, Telma Rut Jónsdóttir, Ívar Örn Baldursson og Björg Guðmundsdóttir. Verkið sem er í fimm þáttum segir frá ævi Sigga nokkurs. Við fylgjumst með því í öfugri tímaröð, þ.e. frá enda til upphafs. Miðasala er í síma 786-1250. Sýningar verða auglýstar á Facebooksíðu Leikfélags...

Sjá meira

Djöflaeyjan á Selfossi

Leikfélag Selfoss æfir um þessar mundir leikritið Djöflaeyjuna í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Stefnt er að frumsýningu í lok febrúar. Unnið er með sögurnar Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan eftir Einar Kárason sem og leikgerðir Leikfélags Reykjavíkur og Þjóðleikhússins. Áætluð frumsýning er í lok febrúar.Rúnar Guðbrandsson hefur áður unnið með Leikfélagi Selfoss, fyrst árið 2010 með Sólarferð eftir Guðmund Steinsson og Kirsuberjagarðinn eftir Chekov árið 2017. Hann hefur sett upp fjölda sýninga hjá sjálfstæðum atvinnuleikhúsum og áhugaleikfélögum um land allt. Rúnar er fagstjóri leiklistar við Kvikmyndaskóla Íslands.Djöflaeyjan er löngu orðin vel þekkt saga þar sem Reykjavík eftirstríðsáranna er í...

Sjá meira

Á sama bekk í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs sýnir leikdagskrána Á sama bekk fimmtudaginn 9. janúar kl. 19.30. Þrír leikþættir eru í dagskránni: Komið og farið eftir Samuel Beckett í þýðingu Árna Ibsen. Leikarar Birgitta Hreiðarsdóttir, Ólöf P. Úlfarsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir, leikstjóri Hörður Sigurðarson.Um það sem skiptir máli eftir Jeannie Webb, leikarar María Björt Ármannsdóttir og Valgerður Rannveig Valgarðsdóttir, þýðandi og leikstjóri Sigrún Tryggvadóttir.Á sama bekk eftir Sævar Sigurgeirsson, leikarar Guðný Sigurðardóttir og Sigurður Kristinn Sigurðsson, leikstjóri Hörður Sigurðarson.Lýsing Skúli Rúnar Hilmarsson. Búningar María Björt Ármannsdóttir og leikhópurinn. Sýnt í Leikhúsinu, Funalind 2, fim. 9. janúar kl. 19.30. Miðapantanir eru á vef félagsins....

Sjá meira

Námskeið hjá Opna listaháskólanum

Opni listaháskólinn er með námskeið sem höfða til leiklistaráhugafólks á vorönn. Má þar m.a. nefna námskeiðin Aðferðir leiklistar við kennslu og Textaverk. Alls eru 27 fjölbreytt námskeið í boði á vorönn 2020. Meðal annars hægt að læra um Skapandi starf í tónlistarnámi, fræðast um Sýningargerð og sýningarstjórnun, sækja glænýja námskeiðið Listir og göngur, kynna sér Aðferðir leiklistar í kennslu og læra um og tileinka sér mismunandi notkun ólíkra texta í listaverkum í námskeiðinu Textaverk, svo fátt eitt sé nefnt. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á vef Opna listaháskólans....

Sjá meira

Helgi Seljan – minningarorð

Helgi Seljan, fyrrum formaður Bandalags íslenskra leikfélaga er látinn. Helgi var einn af öflugustu félögum hreyfingarinnar um árabil. Hann tók þátt í leikstarfi sem ungur maður og starfaði með Leikfélagi Reyðarfjarðar frá stofnun þess árið 1959 allt þar til hann hóf störf á leiksviði stjórnmálanna.  Helgi var stjórnarmaður í BÍL á árunum 1966-1976 og gegndi embætti formanns tvö ár, 1972-1974. Sem alþingismaður barðist hann fyrir hag leiklistarhreyfingarinnar m.a. með endurskoðun laga um áhugaleikfélög.  Helgi var vinamargur og afar vel látinn af þeim sem kynntust honum í leik og starfi. Hann var gleðigjafi og húmoristi mikill sem birtist m.a. í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert