Tökin hert frumsýnt í Óperunni
Aðalverkefni Óperunnar á haustmisseri, óperan Tökin hert (The Turn of the Screw) eftir Britten verður frumsýnd föstudaginn 21. október. Það er óhætt að segja að aðstandendur sýningarinnar séu komnir með smá fiðring í magann. Æfingar hafa gengið vel og það er alveg ljóst að sýningin verður stórglæsileg og áhugaverð bæði fyrir augað og eyrað. Óperan Tökin hert verður aðeins sýnd 6 sinnum í Íslensku óperunni, og er því um að gera að tryggja sér miða sem fyrst til þess að missa ekki af þessari glæsilegu sýningu sem er svo sannarlega á heimsmælikvarða. Texti óperunnar er eftir Myfanwy Piper byggður á smásögu Henry James sem kom út árið 1898. Óperan var frumsýnd í Feneyjum árið 1954 og hefur síðan þá verið sýnd reglulega í öllum helstu óperuhúsum í heimi, en þetta er í fyrsta skipti sem að Tökin hert er sett upp hér á landi. Myndin hér til vinstri er af Britten. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky, leikstjóri Halldór E. Laxness, leikmynda- og búningahönnuður Snorri Freyr Hilmarsson og ljósahönnuðir Björn Bergsteinn Guðmundsson og Jóhann Bjarni Pálmason. Einsöngvarar eru: Hulda Björk Garðarsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ísak Ríkharðsson. Söguþráður: Systkinin Miles og Flóra eru munaðarlaus og frændi þeirra og forráðamaður vill sem minnst af þeim vita. Börnin búa á sveitasetri hans, Bly, og hann ræður þangað unga kennslukonu til að hugsa um þau. Fyrir...
Sjá meira


